|
|
Sunrise Lakes villa Skilmálar Þegar við og okkar er nefnt í þessum skilmálum er vísað til eigenda hússins Friðriks Sigurðssonar og Magneu Magnúsdóttur Bókun Með undirskrift og eða pöntun með rafrænum hætti (tölvupósti) samþykkja leigutakar skilmála þessa eins og þeim er lýst hér að neðan. Skilmálarnir gilda fyrir alla þá sem hyggjast dvelja í húsinu jafnvel þótt að viðkomandi hafi ekki skrifað undir skilmála þessa. Allar bókanir verða staðfestar svo fljótt sem mögulegt er eftir að undirskrifað og eða rafræn pöntun eða bókunarform hefur borist okkur ásamt staðfestingargjaldi. Ef við getum ekki af einhverri ástæðu staðfest bókun ykkar munum við endurgreiða allt staðfestingargjaldið. Samkvæmt lögum í Flórida hafa aðeins þeir sem eru skráðir á bókunarformið heimild til að dvelja í húsinu, ekki er heimilt að framselja eða framleiga bókun. Pantanir og greiðslur Staðfestingargjaldið kr. 25.000 greiðist þegar fullgild bókun hefur borist okkur. Eftirstöðvar ber að greiða eigi síðar en 8 vikum fyrir áætlaða brottför. Við áskiljum okkur rétt til að afturkalla bókun sem ekki er greidd innan tilskilins tíma. Tryggingafé Við áskiljum okkur rétt til að innheimta kr. 20.000 í tryggingagjald. Gjald þetta er til trygginga á skemmdum, símareikningum, þrifum og öðrum sem upp getur komið við dvöl ykkar í húsinu. Þessi fjárhæð nær þó ekki yfir þá hluti sem kalla má verulega svo sem ef kaupa þarf þrif á teppum eða áklæðum húsgagna. Þetta tryggingafé er endurgreitt að fullu innan 30 daga frá lokum leigtíma ef húsnæðinu er skilað í sambærilegu ástandi og við því var tekið. Leigutaki er ábyrgur fyrir þeim skemmdum sem verða á húsnæðinu eða búnaði þess þó svo að kostnaður við viðgerð sé hærri en ofangreint tryggingagjald og ber leigtaka þá að greiða það sem á vantar. Leigutökum er ekki heimilt að far með neitt úr innbúi hússins úr húsinu Tilkynna skal strax til okkar eða þjónustuaðila hússins ef eitthvað brotnar eða skemmist. Hægt er að leggja fram tékka fyrir þessari upphæð sem verður skilað ef allur viðskilnaður á húsinu er í lagi. Afbókanir Við áskiljum okkur rétt til að afturkalla bókun sem ekki er greidd innan tilskilins tíma. Ef afbókað er innan átta vikna frá brottfarardegi áskiljum við okkur heimild til að halda allri þeirri fjárhæð sem til okkar hefur verið greidd. Við bendum sérstaklega á að hægt er að kaupa sérstakar afbókunar tryggingar hjá tryggingafélögum. Allar afbókanir verða að berast okkur skriflega undirritaðar af þeim sem bókaði upphaflega. Ófyrirséðar breytingar Komi upp ófyrirséðir atburðir áskiljum við okkur rétt til að endurgreiða alla þá fjárhæð sem leigutaki hefur greitt til okkar (án vaxta og kostnaðar) eða við aðstoðum leigutaka við að fá annað sambærilegt húsnæði. Force Majerus Við tökum enga ábyrgð vegna "Force Majeurs" það er atburða sem eru utan okkar valdasviðs svo sem stríð, hryðjuverk, uppþot, seinkanir á flugi, slæmu veðri, eldsvoðum, flóðum eða öðru því sem fellur jafnan undir Force Majeurs. Kvartanir Ef upp kemur vandamál skal leigutaki hafa samband við þjónustuaðila okkar á staðnum sem mun leysa úr hvers manns vanda. Aðgangur Húsið er tilbúið til afhendingar kl. 16:00 fyrsta leigudag og skal það yfirgefið eigi síðar en kl.10:00 árdegis á brottfaradegi. Ábyrgðir Við tökum enga ábyrgð á slysum, eða þjófnaði sem á sér stað í eða við húsið. Við bendum á að óheimilt er að skilja börn eftir án fullorðins umsjónarmanns í sundlaug hússins. Við hvetjum eindregið til þess að allir okkar viðskiptavinir séu með góðar ferðatryggingar frá sínu tryggingafélagi. Öryggi og eftirlit Við eða þjónustuaðili okkar hefur heimild til að koma í húsið hvenar sem er á leigutímanum. Vegabréf ofl. Leigutaka ber að sjá um að vegabréf og aðrir möguleigir pappírar séu fullgildir til að komast til Bandaríkjanna. Við tökum enga ábyrgð á því ef leigutaki eða einhver úr hópi hans fær ekki heimilaðan landgang í Bandaríkjunum. Komi slíkt upp er ekki um endurgreiðslu að ræða frá okkur. Verð öryggi Verðið sem er gefið upp er endanlegt verð með öllum sköttum og við það verð sem fram kemur á bókunarforminu bætast engar frekari fjárhæðir. Hiti í sundlaug Hægt er að kaupa hita á sundlaugina yfir vetratímann greiða þarf sérstaklega fyrir þessa þjónust og kemur verðið fram í gjaldskrá okkar. Ekki er tekin ábyrgð á hitastigi vatnsins enda tekur það einnig mið af veðurfari á hverjum tíma. Reykingar bannaðar Reykingar eru alfarið bannaðar í húsinu en reykingafólki er þó heimilt að reykja á sundlaugarsvæðinu. En í "gvuðana bænum" tíniði upp stubbana og haldið veröndinni hreinni. Gæludýr Gæludýr eru algjörlega óheimili í húsinu eða á sundlaugarsvæðinu. Samningur Þessi samningur er fullgildur við undirritun bókunarforms og eða með pöntun á rafrænum hætti (tölvupósti) og gilda um hann Íslensk og Bandarísk lög eins og við á um hvert atriði.
Hafðu samband við okkur í tölvupósti:
|
||||||