Ný lög um umdæmaskipan sýslumanna taka gildi um næstu áramót. Embættin verða 9 í stað 24 áður, sem tryggir öflugri og stærri embætti og skapar ný tækifæri fyrir þessa mikilvægu þjónustu í öllum landshlutum.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt um skipan í embætti sýslumanna í nýjum umdæmum. Ný embætti sýslumanna munu taka til starfa um næstu áramót í samræmi við ný lög sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglustjóra og aðskilnað embættanna.
Samkvæmt hinum nýju lögum verður sýslumannsembættum fækkað úr 24 í níu. Lokið verður skipan í embætti í nýjum umdæmum lögreglustjóra á næstu dögum.
Skipan í embætti sýslumanna verður sem hér segir:
Sýslumaður á Suðurlandi: Anna Birna Þráinsdóttir.
Sýslumaður í Vestmannaeyjum: Lára Huld Guðjónsdóttir.
Sýslumaður á Austurlandi: Lárus Bjarnason.
Sýslumaður á Norðurlandi eystra: Svavar Pálsson.
Sýslumaður á Norðurlandi vestra: Bjarni G. Stefánsson.
Sýslumaður á Vestfjörðum: Jónas Guðmundsson.
Sýslumaður á Vesturlandi: Ólafur K. Ólafsson.
Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu: Þórólfur Halldórsson.
Sýslumaður á Suðurnesjum: Ásdís Ármannsdóttir.
„Það er afar ánægjulegt að svo öflugur hópur einstaklinga taki að sér þessi mikilvægu embætti sýslumanna í landinu. Sýslumannsembættin eru gamalgrónar og traustar stjórnsýslu- og þjónustustofnanir sem gegna mikilvægu hlutverki. Með sameiningu og fækkun embætta verða til stærri, öflugri og hagkvæmari rekstrareiningar sem eru betur í stakk búnar til að takast á við ný verkefni og efla þjónustu við almenning í landinu,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
