Þingmenn Norðausturkjördæmis hafna fækkun: „Munum taka í handbremsuna“

Þrír þingmenn Norðausturkjördæmis, þar af einn stjórnarliði, sem tjáðu sig við Húsavík.com í gær leggjast allir gegn tillögum starfshóps dómsmálaráðherra sem myndi fækka þingmönnum kjördæmisins úr tíu í sjö. Starfshópurinn leggur til að föstum kjördæmissætum verði fækkað úr 54 í 36 en jöfnunarsætum fjölgað úr níu í 27. Þingsætum …

Framkvæmdamál fyrirferðamikil á fundir sveitarstjórnar í dag

Sveitarstjórn Norðurþings kom saman til fundar í dag og voru fjölmörg framkvæmdamál til umræðu. Meðal mála sem sveitarstjórn samþykkti snéru að endurbótum á stjórnsýsluhúsinu við Ketilsbraut, byggingu nýs sundlaugarkars í Lundi og endurnýjun á gólfi, stúku og búnaði í Íþróttahöllinni á Húsavík. Gert er ráð fyrir að þessi verkefni …

Ný sveitarstjórn kemur saman til fyrsta fundar á fimmtudag

Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Norðurþings er á fimmtudag, 11. júní og hefst hann klukkan 13:00. Fundurinn fer fram í Orkustöðinni að Hrísmóum. Þar mun nýr meirihluti formlega taka við stjórn sveitarfélagsins og kosið verður í ráð, nefndir og stjórnir sveitarfélagsins. Samkvæmt meirihlutasamkomulagi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknarflokks og Óskalista skiptast helstu …

Mun færri útstrikanir og minna af auðum seðlum nú en fyrir fjórum árum

Mun færri útstrikanir voru á kjörseðlum í sveitarstjórnarkosningunum í Norðurþingi um helgina en í kosningunum árið 2022. Samtals voru 20 útstrikanir skráðar nú, en þær voru 54 fyrir fjórum árum. Flestar útstrikanir í ár voru hjá D-lista Sjálfstæðisflokksins, alls 10 talsins. Þá voru fjórar útstrikanir hjá Óskalistanum og þrjár …

Bjóða Óskalistanum til formlegra meirihlutaviðræðna í dag

Óskalistanum hefur verið boðið til formlegra meirihlutaviðræðna. Þetta staðfesti Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Húsavík.com í gærkvöldi. Viðræður Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknarflokks og Óskalistans hefjast í dag, en Húsavík.com hafði heimildir fyrir því að fulltrúar þriggja fyrrnefndu framboðanna hefðu fundað á sunnudagskvöld. „Það er búið að bjóða …

Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Framsókn í samtali um myndun meirihluta

Fulltrúar í nýkjörinni sveitarstjórn Norðurþings halda spilunum þétt að sér þessa dagana, en samkvæmt heimildum Húsavík.com úr baklandi nokkurra framboða eru óformlegar viðræður þegar hafnar milli Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks, um myndun nýs meirihluta. Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks og fyrsti fulltrúi í nýrri sveitarstjórn vildi aðspurð hvorki staðfesta …

„Allt á góðu róli“ hjá yfirkjörstjórn Norðurþings fyrir kosningarnar

Undirbúningur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram í Norðurþing á laugardag stendur nú sem hæst og að sögn Karls Hreiðarssonar, formanns yfirkjörstjórnar, gengur allt samkvæmt áætlun. „Það gengur vel og allt á góðu róli,“ sagði Karl í samtali við Húsavík.com. Hann segir síðustu daga hafa farið í undirbúning talningarinnar og …

Markþing kallaði frambjóðendur til samtals um verslun og ferðaþjónustu

Markþing, áður Húsavíkurstofa, stóð í dag fyrir opnum fundi í Safnahúsinu á Húsavík þar sem málefni verslunar og ferðaþjónustu í Norðurþingi voru rædd. Fimm af sex framboðum í sveitarfélaginu sendu fulltrúa á fundinn og svöruðu þau bæði spurningum fundarstjóra og gesta úr sal. Fundinum stýrði Daníel Chandrachur Annisius, stjórnarmaður …