Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Norðurþings er á fimmtudag, 11. júní og hefst hann klukkan 13:00. Fundurinn fer fram í Orkustöðinni að Hrísmóum. Þar mun nýr meirihluti formlega taka við stjórn sveitarfélagsins og kosið verður í ráð, nefndir og stjórnir sveitarfélagsins.
Samkvæmt meirihlutasamkomulagi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Framsóknarflokks og Óskalista skiptast helstu embætti þannig:
Forseti sveitarstjórnar verður af D-lista.
Annar varaforseti sveitarstjórnar verður af B-lista.
Formaður byggðarráðs verður af S-lista.
Formaður fjölskylduráðs verður af S-lista.
Formaður skipulags- og framkvæmdaráðs verður af D-lista.
Formaður stjórnar Orkuveitu Húsavíkur verður af D-lista.
Formaður hafnarstjórnar verður af B-lista.
Athygli vekur að þrátt fyrir að vera hluti af nýjum meirihluta fær Óskalistinn ekki formennsku í neinni af helstu nefndum eða stjórnum sveitarfélagsins samkvæmt samkomulaginu. Á fundinum verður einnig lögð fram tillaga meirihlutans um ráðningu Bergþórs Bjarnasonar sem nýs sveitarstjóra Norðurþings.
Auk kosninga í nefndir og ráð verður fjallað um fjölmörg önnur mál á fundinum, þar á meðal skipan fulltrúa í stjórn SSNE, siðareglur kjörinna fulltrúa, fundaáætlun sveitarstjórnar, viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnavers á Bakka og erindi vegna slita Héraðsnefndar Þingeyinga.

