Norðursigling og Húsavík Adventures gera 100 milljóna kröfu á Norðurþing

Fyrir fundi byggðarráðs Norðurþings í morgun lágu tvær kröfur um endurgreiðslu farþegagjalda sem greidd hafa verið í Hafnasjóð Norðurþings. Kröfurnar koma frá Norðursiglingu og Húsavík Adventures og nema samanlagt rúmum 100 milljónum króna. Rúmlega 90 milljón króna krafa Gentle Giants á hendur Hafnasjóði Norðurþings var kynnt á fundi ráðsins …

Rætt við formann Framsýnar og forseta sveitarstjórnar í kvöldfréttum RÚV

Rætt var við Aðalstein Árna Baldursson formann Framsýnar og Hjálmar Boga Hafliðason forseta sveitarstjórnar Norðurþings í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld. Tilefnið var staðan á Húsavík eftir að starfsemi kísilvers PCC á Bakka var stöðvuð og áhrif þess á atvinnulíf og byggð á svæðinu. Í fréttinni kom fram að atvinnuleysi …

Transatlantic Aluminum undirritar viljayfirlýsingu við Norðurþing

Félagið Transatlantic Aluminum hefur undirritað viljayfirlýsingu við sveitarfélagið Norðurþing um að kanna möguleika á uppbyggingu álúrvinnsluverksmiðju á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurþingi í dag, en sveitarfélagið hefur undanfarið verið að gera viljayfirlýsingar við þau félög sem hafa sett af stað könnun á uppbyggingu á …

Formaður Framsýnar á Iðnþingi: Allir vinni saman að uppbyggingu á Bakka

Iðnþing 2026 fór fram í Silfurbergi í Hörpu í vikunni. Samtök iðnaðarins stóðu að þinginu sem að þessu sinni bar yfirskriftina „Finnum samhljómin“. Metskráning var á þingið og yfir 700 gestir sátu þingið. Meðal gesta var Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags í Þingeyjarsýslum, sem sérstaklega var boðið að …

Gunnhildur í Sparisjóðnum heiðruð fyrir störf í þágu verslunar í heimabyggð

Gunnhildur Gunnsteinsdóttir og Heiðar Hrafn Halldórsson voru heiðruð á aðalfundi Markþings sem fram fór á Húsavík í gærkvöldi. Í fyrsta sinn í sögu samtakanna var útnefndur sérstakur heiðursmeðlimur Markþings. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem sýnt hefur af sér framúrskarandi baráttu í þágu verslunar eða ferðaþjónustu í heimabyggð, án þess …

Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði …

Undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu rafeldsneytisframleiðslu

Norðurþing og E-Valor hafa undirritað viljayfirlýsingu um að kanna möguleika á uppbyggingu sjálfbærrar rafeldsneytisframleiðslu á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Verkefnið er fyrirhugað í þremur áföngum og miðar að framleiðslu allt að 100.000 tonna af rafeldsneyti á ári þegar fullum afköstum verður náð. Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, segir verkefnið …

„Mikil skerðing á þjónustu við félaga í Völsungi,“ segir Birna í Skóbúðinni

Óánægja kraumar meðal Völsunga á Húsavík eftir að Boltamaðurinn, innflytjandi Puma á Íslandi, ákvað að Völsungsmerktar vörur fáist framvegis eingöngu beint frá fyrirtækinu en ekki í gegnum Skóbúð Húsavíkur. Skóbúðin hefur í áratugi séð um sölu á búningum og fatnaði merktum Völsungur og verið fastur punktur í þjónustu við …