GIGA-42 horfir til stórfelldrar uppbyggingar gervigreindarvers á Húsavík

Á næstu vikum mun Húsavík.com birta ítarlegar fréttaskýringar þar sem kafað verður í þau fyrirtæki sem hafa undirritað viljayfirlýsingar við Norðurþing um uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Fyrirtækin sem undirritað hafa viljayfirlýsingar eru sex talsins, en auk þeirra eru nokkur til viðbótar að vinna að frumathugun.

> Sjá einnig: Hvað er að gerast á Bakka? Sex stór verkefni í pípunum

Fyrst í þeirri röð er bresk-norska fyrirtækið GIGA-42, sem samkvæmt heimildum Húsavík.com úr stjórnsýslu Norðurþings er það gagnaversverkefni sem lengst er á veg komið og jafnframt það sem þykir líklegast til að raungerast.

William George Tasney og Berþór Bjarnason undirrituðu viljayfirlýsingu um verkefnið í ágúst í fyrra.

Gagnaver fyrir gervigreindarvinnslu

GIGA-42 vinnur að uppbyggingu gagnavers sem sérhæft er í vinnslu fyrir gervigreind. Um er að ræða starfsemi sem hefur vaxið hratt á heimsvísu á undanförnum árum, samhliða aukinni notkun gervigreindar og sífellt meiri þörf fyrir öfluga reiknigetu og gagnageymslu. Gervigreindarvinnsla útheimtir mikla raforku og því þykir Ísland um margt vænlegur kostur til slíkrar uppbyggingar vegna grænna orkukosta og náttúrulegrar kælingar.

Áform fyrirtækisins á Bakka gera ráð fyrir fyrsta áfanga upp á um 50 MW, sem telst umtalsverð stærð á íslenskan mælikvarða. Jafnframt er horft til möguleika á stækkun á síðari stigum upp í allt að 200 MW ef aðgangur að orku leyfir. Í lóðarumsókn sinni til Norðurþings í lok síðasta árs var sérstaklega óskað eftir lóðarkosti sem byði upp á möguleika til stækkunar.

Hver standa að baki áformunum?

Húsavík.com hefur skoðað hvaða aðilar standi að baki GIGA-42, en það eru tvö fyrirtæki: Annars vegar er það SCALE42, sem var stofnað árið 2024 og leggur áherslu á uppbyggingu stafrænnar innviða. Hins vegar fjárfestingarfélagið Global Interconnection Group, GIG.

Að GIG stendur breski fjárfestirinn Edi Truell, sem hefur verið áberandi í viðskiptalífi í Bretlandi og vakti nýverið athygli fyrir 40 milljarða kauptilboð í prentfyrirtæki De La Rue, sem hefur annast seðlaprentun fyrir Breska Seðlabankann í tvær aldir. Truell hefur lengi haft áhuga á Íslandi og vann meðal annars að hugmyndum um útflutning raforku frá Íslandi til Bretlands fyrir um áratug.

Samkvæmt gögnum úr bresku fyrirtækjaskránni sitja í stjórn GIGA-42 Bretarnir Amelia Charlotte Henning, James William Stewart og William George Tasney, sem jafnframt gegnir hlutverki forstjóra, auk Ástralans Christian Kutscher.

Breski fjárfestirinn Edi Truell er einn þeirra aðila sem standa að baki verkefninu, gegnum félagið Global Interconnection Group. Hann hefur lengi haft áhuga á Íslandi. Ljósmynd: The Times

Lykilákvarðanir framundan

Viljayfirlýsing milli Norðurþings og GIGA-42 var undirrituð í ágúst í fyrra og markaði upphaf formlegs undirbúnings verkefnisins hér á Húsavík. Í kjölfarið óskaði fyrirtækið eftir lóð á Bakka og hefur sveitarfélagið hafið vinnu við skipulagsmál sem tengjast uppbyggingunni.

Samkvæmt heimildum Húsavík.com hefur GIGA-42 einnig hafið viðræður við Landsvirkjun um raforkusamning, en slíkur samningur er forsenda þess að hægt sé að ráðast í framkvæmdina. Á sama tíma þarf að tryggja flutningsgetu raforku í gegnum kerfi Landsnets, sem er annar lykilþáttur í ferlinu.

Þrátt fyrir að verkefnið sé komið lengra en önnur sem til skoðunar eru á Bakka er ljóst að niðurstaða þessara viðræðna mun ráða úrslitum um framhaldið. Ef samningar nást gæti verkefnið farið af stað á næstu misserum, en ella gæti það tafist um óákveðinn tíma.

Af hverju varð Húsavík fyrir valinu?

Á vefsíðu GIGA-42 kemur fram að val á Húsavík og Bakka byggi á samspili nokkurra lykilþátta sem fyrirtækið telur sérstaklega hagstæða fyrir gagnaverarekstur.

Þar vegur þyngst aðgengi að stöðugri jarðvarmaorku frá Þeistareykjum, sem veitir svokallaða grunnorku sem hentar vel fyrir starfsemi sem þarf að vera í gangi allan sólarhringinn. Þá hefur einnig verið horft til þess að Bakki er þegar skilgreint iðnaðarsvæði með aðgang að háspennukerfi, góðu landrými og nálægð við höfn gegnum göngin undir Húsavíkurhöfða, sem einfaldar uppbyggingu gagnaversins og gerir mögulegt að þróa verkefnið í áföngum.

Að sama skapi leggur fyrirtækið áherslu á samstarf við Norðurþing og þá sýn sveitarfélagsins að byggja upp svæðið með ábyrgum hætti til lengri tíma. Slík samvinna er lykilatriði þegar kemur að uppbyggingu stórra innviðaverkefna, að því er fram kemur á vef GIGA-42.

Miklir stækkunarmöguleikar í kortunum

Þótt fyrsta áfanga sé ætlað að verða um 50 MW er ljóst að framtíðarsýn fjárfestanna er mun umfangsmeiri. Í umsókn um lóð hefur verið horft til þess að tryggja nægjanlegt landrými fyrir frekari uppbyggingu, allt að 20 hektara, sem gæti rúmað stækkun gagnaversins í allt að 200 MW.

Slík þróun myndi setja Bakka í flokk með stærri gagnaverasvæðum á Norðurlöndum og styrkja stöðu svæðisins sem mögulegan miðpunkt fyrir gagnavinnslu og gervigreindarstarfsemi.

Gera ráð fyrir tugum starfa

Ef af uppbyggingunni verður er gert ráð fyrir að um 100 manns komi að framkvæmdum á byggingartíma, en þegar rekstur hefst gætu orðið til 50 til 80 varanleg störf.

Um er að ræða sérhæfð störf á sviðum eins og rafmagns- og vélaverkfræði, kælitækni, rekstri og kerfisfræði, auk annarra starfa sem tengjast daglegum rekstri gagnaversins. Reksturinn verður allan sólarhringinn, allt árið, sem kallar á stöðuga mönnun og þjónustu.

Þá hefur einnig verið horft til þess að glatvarmi frá gagnaverinu geti nýst til frekari uppbyggingar á svæðinu, til dæmis í landeldi eða gróðurhúsarækt, sem gæti skapað frekari afleidd störf í framtíðinni og styrkt innviði sem eru í boði á Bakka.

Alls hefur Norðurþing undirritað 6 viljayfirlýsingar síðasta árið vegna atvinnuuppbyggingar á Bakka. Verksmiðja PCC hætti starfsemi á síðasta ári og enn er óvíst hvort sá rekstur fer af stað á ný.