Fréttavefurinn Húsavík.com hefur legið niðri frá því á föstudagsmorgun, 20. nóvember, þegar umfangsmikil tölvuárás var gerð á vefhýsingarfyrirtækið 1984. Í kjölfar árásarinnar var allri þjónustu fyrirtækisins lokað tímabundið í öryggisskyni. Árásin hafði víðtæk áhrif á starfsemi fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og fjölmiðla, en þúsundir vefsíðna urðu óaðgengilegar og hafa nú legið niðri í heila viku. Vefsíður hýstar af 1984 opnuðu aftur nú rétt fyrir hádegi.
Ritstjórn Húsavík.com vinnur nú að því að færa inn í tímaröð þær fréttir sem skrifaðar voru síðustu viku en ekki var hægt að birta vegna árásarinnar. Þetta hefur verið með stærri fréttavikum í Norðurþingi, bæði þung áföll og jákvæðar fréttir þess á milli.

