Útför Reynis Jónassonar verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag. Reynir fæddist í Svalbarði á Húsavík 10. október 1928 og lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík 14. nóvember síðastliðinn, 98 ára að aldri.
Foreldrar Reynis voru Jónas Jónasson, skósmiður og síðar kaupmaður á Húsavík, og Oddfríður Skúladóttir húsmóðir. Reynir hóf ungur að aðstoða föður sinn og tók við rekstri Skóbúðar Húsavíkur árið 1970. Hann rak verslunina í 38 ár, allt til ársins 2008, þegar dóttir hans, Oddfríður Dögg, keypti hana. Reynir var jafnan kenndur við verslunina og þekktur meðal bæjarbúa sem Reynir í Skóbúðinni.
Árið 1953 kvæntist Reynir Kristínu Axelsdóttur og eignuðust þau fjögur börn, Jakobínu, Jónas, Oddfríði Dögg og Axel. Afkomendur þeirra eru nú orðnir 34.
Í tilefni dagsins birtum við hér nokkrar myndir úr Ljósmyndasafni Þingeyinga.
Blessuð sé minning Reynis í Skóbúðinni.

