Styrktu HSN um 16,7 milljónir: „Stuðningur nærsamfélagsins er mikilvægur“ segir Daníel

Aðalfundur Styrktarfélags HSN í Þingeyjarsýslum var haldinn nýverið en þar var farið yfir rekstur félagsins á árinu 2025 auk þess sem stjórn félagsins afhenti stjórnendum HSN gjafabréf fyrir þeim tækjum sem félagið hefur fjármagnað fyrir stofnunina. Alls styrkti sjóðurinn HSN um 16,7 milljónir króna til tækjakaupa árið 2025. Tekjur …

Úthlutuðu 3,5 milljónum úr samfélagssjóði Orkuveitu Húsavíkur

Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkti á 278. fundi sínum að úthluta samtals 3,5 milljónum króna úr samfélagssjóði fyrirtækisins til fjölbreyttra verkefna í Norðurþingi. Styrkirnir renna til íþrótta-, menningar-, samfélags- og heilsueflingarverkefna á Húsavík, Raufarhöfn, Kópaskeri og í Öxarfirði. Hæsta einstaka úthlutunin að þessu sinni var 700 þúsund króna styrkur til …

Rauði Krossinn: Halldór segir viðurkenninguna endurspegla starf margra sjálfboðaliða

Á aðalfundi Rauði krossinn á Íslandi sem fór fram á Grand Hótel Reykjavík fyrr í mánuðinum var Halldór Valdimarsson heiðraður fyrir góð störf í þágu félagsins. Í umsögn um Halldór sagði meðal annars: „Halldór hóf sitt sjálfboðastarf í stjórn hjá Húsavíkurdeild árið 2012 sem síðan varð Þingeyjarsýsludeild, einmitt fyrir …

Tónasmiðjan fagnar 20 árum í kvöld: „Fallegt og hugljúft í bland við alvöru rokk og ról“

Tónasmiðjan heldur glæsilega afmælistónleika á Fosshótel Húsavík í kvöld, mánudaginn 25. maí, þar sem fagnað verður tuttugu ára starfsafmæli. Húsavík.com ræddi við Elvar Bragason, forsvarsmann Tónasmiðjunnar, rétt fyrir tónleikana í kvöld. „Stemningin er góð, við erum að fara í rennsli eftir nokkrar mínútur og þetta verður stórkostlegt kvöld. Rokk …

Krabbameinsfélagið færði öllum deildum leikskólans Grænuvalla sólarvörn að gjöf

Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga kom færandi hendi í leikskólann Grænuvelli í dag með sólarvörn handa öllum deildum leikskólans. „Það er gott að eiga góða að og nú voru öðlingarnir í Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga að koma færandi hendi með sólarvörn handa öllum deildum. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og takk fyrir innlitið …

Tinna Ósk ráðin félagsmálastjóri Norðurþings

Tinna Ósk Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Norðurþings, en Norðurþing auglýsti starfið í apríl síðastliðinn. Greint var frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins í morgun. Tinna er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands. Tinna hefur starfað við …