Krabbameinsfélagið færði öllum deildum leikskólans Grænuvalla sólarvörn að gjöf

Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga kom færandi hendi í leikskólann Grænuvelli í dag með sólarvörn handa öllum deildum leikskólans. „Það er gott að eiga góða að og nú voru öðlingarnir í Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga að koma færandi hendi með sólarvörn handa öllum deildum. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og takk fyrir innlitið …

Tinna Ósk ráðin félagsmálastjóri Norðurþings

Tinna Ósk Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Norðurþings, en Norðurþing auglýsti starfið í apríl síðastliðinn. Greint var frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins í morgun. Tinna er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands. Tinna hefur starfað við …

Framhaldsskólinn á Laugum mannréttindaskóli ársins hjá Amnesty þriðja árið í röð

Framhaldsskólinn á Laugum hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Amnesty International sem Mannréttindaskóli ársins og er þetta þriðja árið í röð sem skólinn stendur uppi sem sigurvegari miðað við nemendafjölda í framhaldsskólakeppninni „Þitt nafn bjargar lífi“. Keppnin er hluti af alþjóðlegri mannréttindaherferð Amnesty International þar sem safnað er undirskriftum …

Sauna í Sundlaug Húsavíkur: „Nú gefst einstaklingum tækifæri til að leggja söfnuninni lið“

Söfnunin fyrir sauna aðstöðu við Sundlaug Húsavíkur hefur farið vel af stað en fyrst var greint frá verkefninu hér á vefnum í síðasta mánuði. Nú hefur verið stofnað formlegt félag og opnaður söfnunarreikningur fyrir átakið og þannig gefst bæjarbúum og velunnurum Sundlaugar Húsavíkur einnig kostur á að leggja sitt …

Kvenfélag Húsavíkur gaf Húsavíkursöfnuði nýja eldavél í Bjarnahús

Kvenfélag Húsavíkur gaf Húsavíkursöfnuði nýverið eldavél til notkunar í Bjarnahús. „Tengsl Kvenfélagsins og kirkjunnar eiga sér langa og fallega sögu. Í dag er safnaðaheimilið Bjarnahús, í raun einnig heimili Kvenfélagsins, þar halda kvenfélagskonur sína fundi og stærri viðburðir eins og að skera út laufabrauðið og útbúa mæðradagsblóm þeir fara …

Taka málin í eigin hendur og safna fyrir sauna klefa í Sundlaug Húsavíkur

Víðir Svansson, Birgitta Bjarney Svavarsdóttir og Harpa Steingrímsdóttir hafa hrundið af stað söfnun með það að markmiði að gefa Norðurþingi sauna klefa til að setja upp við Sundlaug Húsavíkur. Að þeirra sögn er fjárhagsstaða sveitarfélagsins með þeim hætti að ekki sé gert ráð fyrir slíkri fjárfestingu á næstunni. Því …

Helmingur erlendra íbúa telur rödd sína ekki heyrast í nærsamfélaginu

„Mér finnst áhugavert að þegar þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu að skoðanir þeirra væru teknar til greina í ákvörðunum sem varða nærsamfélagið sagði helmingur þátttakenda svo ekki vera,“ segir Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir hjá Þekkingarneti Þingeyinga í samtali við Húsavík.com um niðurstöður nýrrar rannsóknar á stöðu og reynslu erlendra …