Gefa börnum sólmyrkvagleraugu og skapa mannlegt líkan af myrkvanum

Hagsmunasamtök barna á Húsavík ætla síðdegis í dag að afhenda börnum í bænum sólmyrkvagleraugu og um leið búa til mannlegt líkan af sólmyrkva til að útskýra með einföldum og skemmtilegum hætti hvað gerist þegar tunglið gengur fyrir sólina.

Viðburðurinn hefst klukkan 16:47 í Fum & Fok, Garðarsbraut 15, nákvæmlega 48 klukkustundum áður en sólmyrkvinn verður. Sólmyrkvagleraugun eru í boði Starfsmannafélags Húsavíkur og verða afhent öllum börnum sem vilja. Þátttakendur fá jafnframt leikmuni og verður mannlega líkanið tekið upp með dróna.

„Á miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Okkur langaði að gefa börnum á Húsavík tækifæri til að upplifa þennan einstaka atburð og um leið skilja betur hvað er að gerast,“ segir Benedikt Þorri Sigurjónsson úr stjórn Hagsmunasamtaka barna á Húsavík í samtali við Húsavík.com.

„Við ætlum að búa til lifandi líkan af sólmyrkvanum þar sem börnin fá sjálf að taka þátt og sýna hvernig sólin, tunglið og jörðin raðast upp. Síðan fá öll börn sem vilja sólmyrkvagleraugu svo þau geti fylgst með myrkvanum á öruggan hátt á miðvikudaginn. Við vonum að þetta verði bæði fræðandi og skemmtilegt,“ segir Benedikt Þorri.