Handboltahetja leiðir orkusjálfstæðisbaráttu Tjörnesinga

Það hefur verið mikið að gera hjá ritstjóra Húsavík.com síðustu daga við undirbúning Landkönnunarhátíðar, sem hefst á morgun á Húsavík. Fréttaflutningur hefur því verið með minna móti og heimsóknir á vefinn dalað í takt við það.

Það birti þó heldur betur yfir þegar oddviti Tjörneshrepps hringdi inn á ritstjórnina í morgun með stórfrétt. Hjarta ritstjórans tók þegar kipp, enda eru fréttir úr Tjörneshreppi iðulega meðal þeirra mest lesnu hér á vefnum.

„Hér í Sólvangi er athyglisverð framkvæmd við sólarsellur í gangi,“ sagði oddvitinn Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson.

Og það voru ekki einu sinni stærstu tíðindin. Engan þarf svo sem að undra að ríkasti hreppur landsins, fríríkið á Tjörnesi, taki skref í átt að orkusjálfstæði með félagsheimili sitt. Stóra fréttin var hins vegar hver var staddur uppi á þaki við að koma orkuverinu fyrir: enginn annar en handknattleiksgoðsögnin Geir Sveinsson.

Húsavík.com verður með hægara móti næstu daga á meðan ritstjórinn stýrir Landkönnunarhátíðinni, en áfram verður fylgst grannt með þessari stórframkvæmd á Tjörnesi. Væntingar standa til þess að á næstu dögum geti miðillinn birt mynd af oddvitanum og handboltakappanum við orkuverið og jafnvel komist að því hvernig Geir Sveinsson endaði uppi á þaki félagsheimilisins Sólvangs á Tjörnesi.