PCC BakkiSilicon tapaði 244,2 milljónum dala í fyrra, jafnvirði 31,3 milljarða króna, samkvæmt ársreikningi félagsins sem birtist á vef Skattsins fyrr í mánuðinum. Tapið á einu ári var þar með meira en samanlagt tap áranna 2018–2024, sem nam ríflega 30 milljörðum króna. Um helmingur tapsins í fyrra skýrist af virðisrýrnun rekstrarfjármuna, sem nam tæplega 16 milljörðum króna.
Framleiðsla í kísilverinu á Bakka við Húsavík hefur legið niðri frá 20. júlí 2025. Félagið á í viðræðum við lánveitanda og helstu birgja um endurskipulagningu skulda, uppgjör vanskila og skilyrði fyrir því að hefja framleiðslu á ný. Viðræðunum var ólokið þegar ársreikningurinn var samþykktur. Áfallnir bankavextir ársins 2025, jafnvirði um 1,8 milljarða króna, höfðu þá ekki verið greiddir og félagið var í verulegum vanskilum við birgja vegna raforku og raforkuflutnings.
Eigið fé félagsins var neikvætt um 29 milljarða króna í árslok 2025. Frá því að framleiðsla stöðvaðist hefur félagið ekki haft teljandi innstreymi fjár af rekstri og reiðir sig á fjármögnun móðurfélagsins PCC SE. Móðurfélagið hefur staðfest skriflega að það muni áfram veita fjárhagslegan stuðning. Óvissa ríkir þó enn um hvenær framleiðsla getur hafist á ný.

