Þrír fórust þegar Jökull ÞH sökk austur af landinu

Þrír skipverjar létust og fjórtán var bjargað eftir að fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis í gær. Skipið var í eigu GPG Seafood á Húsavík og gert út frá Raufarhöfn. Það var við grálúðuveiðar á Héraðsdjúpi þegar neyðarkall barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 17:05. Skipstjóri tilkynnti að lúga aftarlega á skipinu hefði brotnað og sjór væri farinn að streyma inn í skipið. Aðeins tólf mínútum síðar var öll áhöfnin komin í flotgalla og að yfirgefa skipið. Erfiðlega gekk að koma björgunarbátum í notkun og klukkan 17:24 bárust merki um að skipið væri sokkið.

Umfangsmiklar björgunaraðgerðir hófust þegar í stað og var samhæfingarstöð almannavarna virkjuð. Þyrla og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út, auk björgunarskipa Landsbjargar og fiskiskipa á svæðinu. Aðstæður á slysstað voru afar erfiðar vegna veðurs og mikillar ölduhæðar. Eftirlitsflugvélin TF-SIF kom á vettvang skömmu eftir klukkan 20 og var reynt að koma björgunarbátum til skipverjanna án árangurs. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRÓ, kom á slysstað klukkan 21:21 og hófst þá vinna við að hífa skipverjana upp úr sjónum. Áhafnir fiskiskipanna Svanar og Harðbaks komu einnig að björgunaraðgerðunum.

Klukkan 22:54 höfðu allir sautján skipverjarnir verið hífðir um borð í þyrluna, en þeir sem lengst höfðu verið í sjónum höfðu þá velkst þar í um fimm og hálfa klukkustund. Þyrlan lenti á Egilsstaðaflugvelli klukkan 23:37 þar sem fjölmennt lið heilbrigðisstarfsfólks og björgunarsveitarfólks tók á móti skipverjunum. Þeir sem þurftu á aðhlynningu að halda voru fluttir á heilsugæsluna á Egilsstöðum og hluti þeirra var fluttur áfram til Reykjavíkur í nótt. Í morgun staðfesti Landhelgisgæslan að þrír skipverjar hefðu látist. Á blaðamannafundi yfirvalda í morgun kom fram að áhöfn þyrlunnar hefði lagt sig í mikla hættu við björgun skipverjanna.

Mikill harmur ríkir á Húsavík og Raufarhöfn vegna slyssins. Stjórnendur GPG Seafood og sveitarstjórn Norðurþings hafa sent frá sér samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina skipverjanna og þakkað þeim fjölmörgu sem komu að björgunaraðgerðunum. Víða hefur verið flaggað í hálfa stöng á Húsavík í dag og kveikt var á sautján kertum í Húsavíkurkirkju, einu fyrir hvern skipverja. Þar var boðað til bænastundar klukkan 17 í dag. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið gagnaöflun og frumrannsókn vegna slyssins, en endanlegar orsakir þess liggja ekki fyrir.