Þingeyjarsveit mótmælir fyrirhugaðri hækkun kílómetragjalds

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur mótmælt fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds á ökutæki sem lögð hefur verið til í tengslum við fjárlög ársins 2027.

Málið snertir ekki síst íbúa og fyrirtæki á landsbyggðinni þar sem vegalengdir eru miklar og aðgengi að almenningssamgöngum takmarkað. Margir íbúar Þingeyjarsýslna þurfa daglega að ferðast um langan veg til vinnu, skóla og þjónustu.

Fyrirhuguð hækkun kemur til viðbótar við aðrar breytingar á skattlagningu sem boðaðar hafa verið í tengslum við fjárlög næsta árs og hafa verið til umræðu meðal fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi.