Tónleikum sem fram áttu að fara á Fosshótel Húsavík í kvöld í tilefni af 20 ára afmæli Norðurþings hefur verið frestað vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu í dag.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Tónar milli staða, sem efnt var til í tilefni af afmæli sveitarfélagsins. Upphaflega var gert ráð fyrir þrennum fjölskyldutónleikum á Húsavík, Raufarhöfn og Kópaskeri í vikunni, þar sem lög og textar eftir þingeyskt tónlistarfólk skipa veigamikinn sess.
Ísak Már Aðalsteinsson hefur umsjón með tónlistarlegri stjórn verkefnisins og er Ágúst Þór Brynjarsson í broddi fylkingar hljómsveitar sem skipuð er tónlistarfólki með tengsl við sveitarfélagið. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Ný dagsetning tónleikanna á Húsavík hefur ekki verið tilkynnt.

