Um áramót sameinast níu sýslumannsembætti landsins í eitt og verður Ísland þá eitt sýslumannsumdæmi. Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til að aðlaga löggjöf að breytingunum, að því er fram kemur í frétt RÚV í dag. Kristín Þórðardóttir var í sumar skipuð sýslumaður og mun veita hinu nýja embætti forstöðu. Starfsstöðvar verða áfram óbreyttar, þar á meðal á Húsavík, og starfsfólk færist yfir til hins nýja embættis.
Samhliða breytingunum er lagt til að ýmsir gamlir starfstitlar verði felldir úr lögum, þar á meðal könnunarmaður, yfirlögráðandi og þinglýsingarstjóri. Einnig verða ákvæði um sérstaka umboðsmenn sýslumanna felld brott. Starfstitillinn lögbókandi heldur sér hins vegar, sem og ákvæði um hreppstjóra, þótt það embætti hafi fyrir löngu verið lagt niður í íslenskri stjórnsýslu.

