Byggðarráð Norðurþings tók á fundi sínum í gær undir bókun svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs um mikilvægi þess að rafmagn verði lagt að Dettifossi vestan Jökulsár á Fjöllum. Ráðið ítrekar mikilvægi uppbyggingar raforkuinnviða á svæðinu.
Svæðisráð þjóðgarðsins telur brýnt að tryggja raforku fyrir grunninnviði á svæðinu og hleðslu rafknúinna ökutækja. Ráðið styður að Náttúruverndarstofnun fylgi verkefninu eftir gagnvart RARIK og ráðuneytinu og leggi fram afl- og orkuspá vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar.
Í bókun svæðisráðs kemur fram að Demantshringurinn sé ein þekktasta ferðamannaleið landsins og að Dettifoss hafi þar mikið aðdráttarafl. Reynslan sýni að með bættri þjónustu fjölgi gestum og því sé uppbygging raforkuinnviða á svæðinu mikilvægt byggðarmál. Svæðisráðið óskaði eftir skriflegri afstöðu Norðurþings og Þingeyjarsveitar til verkefnisins.

