Ferðaþjónustan fagnaði uppskeru ársins á Norðurhjarasvæðinu

Frumkvöðlastarf, metnaðarfull uppbygging og tækifæri til framtíðar voru í brennidepli þegar Markaðsstofa Norðurlands hélt árlega uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar fimmtudaginn 15. október. Að þessu sinni fór hátíðin fram í Norðurþingi þar sem ferðaþjónustufólk víðs vegar að af Norðurlandi kynntist fjölbreyttri starfsemi og uppbyggingu í Kelduhverfi, á Kópaskeri og Raufarhöfn. Dagurinn hófst …

Arnór Bogason, Flateyjardalur

Náðu sambandi við Neyðarlínuna um gervihnött eftir slys á Flateyjardal

Notendur iPhone 14 og nýrri síma geta haft samband við Neyðarlínuna með textaskilaboðum um gervihnött þegar hvorki farsíma- né netsamband er til staðar. Þessi tækni kom að góðum notum þegar ferðafélagi Arnórs Bogasonar ökklabrotnaði í hjólaferð á Flateyjardal í sumar. „Mikilvægt að fólk viti af þessu. Kom í góðar …

Skipstjóri Rembrandt: „Fengum einstakar og ógleymanlegar móttökurnar á Raufarhöfn“

Það blés köldu en fallegt var yfir að líta þegar blaðamaður Húsavík.com ók inn í Raufarhöfn í gær. Þrjú möstur skemmtiferðaskútunnar Rembrandt van Rijn báru við Höfðann og við bryggjuna lá skipið í vari fyrir veðurofsanum úti fyrir Norðurlandi. Um borð tók Ismael Ramonde skipstjóri á móti blaðamanni, en …

20 þúsund flugsæti til Norðurlands í vetur: „Verðum að taka undir og nýta þennan kraft“

Markaðsstofa Norðurlands stóð, í samstarfi við Íslandsstofu, fyrir vinnustofu um breska ferðamarkaðinn og markaðsstarf í Hofi á Akureyri í síðustu viku. Tilefnið er meðal annars beint vetrarflug easyJet frá London og Manchester til Akureyrar, en samkvæmt upplýsingum Markaðsstofu Norðurlands eru um 19.500 staðfest sæti í fluginu í vetur. Á …

„Við megum ekki við því að tapa fleiri störfum,“ segir forseti sveitarstjórnar

Meðal ályktana haustþings SSNE sem fór fram á Dalvík þann 9. september var ályktun um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón og sambærilega baðstarfsemi. Ályktunin var lögð fram að tillögu þingfulltrúa Norðurþings og samþykkt á þinginu eftir umræður um áhrif breytinganna á ferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og fjárfestingar á Norðurlandi eystra. Helena …

Byggðarráð vill fund með fjármálaráðherra vegna söluáforma á flugstöðinni

Byggðarráð Norðurþings hefur falið sveitarstjóra að koma á fundi með fjármálaráðherra vegna áforma ríkisins um sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Eins og Húsavík.com hefur greint frá er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 að finna heimild til sölu á flugstöðinni. Áformin hafa þegar vakið hörð viðbrögð á svæðinu, …

„Með öllu óæskilegt að ráðstafa flugstöðvarbyggingunni með söluheimild“

Markþing, samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu og verslun á Húsavík og nágrenni, mótmælir harðlega fyrirhugaðri heimild í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Samtökin skora á stjórnvöld að falla frá áformunum og móta þess í stað skýra langtímasýn um framtíð flugvallarins. Í ályktun sem stjórn Markþings hefur …

Jens Garðar um fjárlagafrumvarpið: „Skelfilegar fréttir fyrir ferðaþjónustuna“

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 fela í sér mjög slæmar fréttir fyrir ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi. Ríkisstjórnin kynnti frumvarpið í gær en meðal boðaðra breytinga eru hækkun kílómetragjalds um 15,9 prósent, hækkun virðisaukaskatts á baðlónum úr 11 í 24 prósent …