Þrjú skemmtiferðaskip við bryggju á Húsavík í dag

Þrjú skemmtiferðaskip eru við bryggju á Húsavík í dag og er þetta stærsti dagur ársins í skemmtiferðaskipakomum til bæjarins. Skipin þrjú eru Quest, Hebridean Sky og Silver Endeavour.

Skipin eru nokkuð ólík að stærð og gerð. Quest er minnst þeirra, lítið leiðangursskip sem tekur um 50 farþega. Hebridean Sky er einnig leiðangursskip og getur tekið tæplega 120 gesti, en langstærst er Silver Endeavour, nýlegt lúxusleiðangursskip Silversea sem tekur allt að 220 farþega.

Samanlagt geta skipin því flutt nærri 400 gesti, auk áhafna, og setja þau töluverðan svip á höfnina og miðbæ Húsavíkur í dag.