Fulltrúar sveitarfélagsins Norðurþings fara á haustþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, sem verður haldið í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík miðvikudaginn 9. september. Þingið hefst klukkan 11:30 og stendur formleg dagskrá til klukkan 17.
Fulltrúar Norðurþings verða Helena Eydís Ingólfsdóttir, Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Kjartan Páll Þórarinsson, Rúnar Traustason og Aldey Unnar Traustadóttir.
Á þinginu verður meðal annars farið yfir framvindu starfs- og fjárhagsáætlunar SSNE fyrir árið 2026 og starfsáætlun ársins 2027 kynnt. Þá verða teknar fyrir tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun samtakanna fyrir árin 2025 til 2028, auk ályktana og annarra mála sem löglega verða borin upp.
Logi Einarsson, ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, flytur ávarp á þinginu ásamt Leifi Þorkelssyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra. Síðdegis verður jafnframt vinnustofa þar sem undirbúningur fyrir Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og stefnumótun sambandsins verður til umræðu.

