Framkvæmdamál fyrirferðamikil á fundir sveitarstjórnar í dag

Sveitarstjórn Norðurþings kom saman til fundar í dag og voru fjölmörg framkvæmdamál til umræðu. Meðal mála sem sveitarstjórn samþykkti snéru að endurbótum á stjórnsýsluhúsinu við Ketilsbraut, byggingu nýs sundlaugarkars í Lundi og endurnýjun á gólfi, stúku og búnaði í Íþróttahöllinni á Húsavík. Gert er ráð fyrir að þessi verkefni komi inn í fjárhags- og fjárfestingaáætlanir sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og næstu ár.

Þá var samþykkt að sækja um svokallaðan FIFA Arena mini-pitch frá KSÍ, með fyrirhugaða staðsetningu á skólalóð Öxarfjarðarskóla, auk þess sem unnið verði að þarfagreiningu og frumhönnun vegna endurbóta á sal Borgarhólsskóla. Sveitarstjórn samþykkti einnig að vinna áfram að yfirborðsfrágangi á Öskjureit, gerð sérstaks lóðavefs fyrir sveitarfélagið og gerð umferðaröryggisáætlunar.

Húsavík.com mun fjalla nánar um helstu mál fundarins á morgun en hægt er að horfa á upptöku frá fundinum hér: