Kristín Anna Hreinsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Norðurþings sem var auglýst þann 10. júlí s.l. og var umsóknarfrestur um starfið til og með 3. ágúst. Alls voru 10 umsækjendur um starfið. Ráðgjafi hjá Mögnum, Sigríður Ólafsdóttir, vann að úrvinnslu í ráðningarferlinu.
Kristín Anna hefur lokið B.S. prófi í viðskiptafræði með áherslu á reikningshald og meistaraprófi í reikningshaldi og endurskoðun (M.Acc.) frá Háskóla Íslands.
Á vef Norðurþings segir að Kristín Anna búi yfir umfangsmikilli reynslu af reikningshaldi, uppgjörsvinnu, fjárhagsáætlanagerð, endurskoðun og fjármálastjórnun. Hún hefur gegnt störfum fjármálastjóra, aðalbókara, endurskoðenda og verkefnastjóra í endurskoðun og núna síðast sem forstjóri PCC Bakki Silicon.

