Gestir hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík voru í hópi þeirra heppnu sem upplifðu hinn einstaka sólmyrkva yfir Íslandi í síðustu viku.
Tugir þúsunda gesta ferðuðust til Íslands til að fylgjast með þessum einstaka atburði en vestanvert landið var innan almyrkvasvæðisins. Frá öðrum landshlutum, þar á meðal hér á Norðurlandi, huldi tunglið stóran hluta sólarinnar en hér voru veðurskilyrði jafnframt hagstæðari víða en vestanlands þar sem var skýjað.
Hjá starfsfólki Gentle Giants á Húsavík vaknaði áhugaverð spurning í tengslum við myrkvann: Hvernig myndu hvalir og annað lífríki sjávar bregðast við þessari skyndilegu breytingu á birtu?
Vísindamenn hafa áður skráð breytingar á hegðun fugla og skordýra við sólmyrkva, en mun minna er vitað um viðbrögð hvala.
Carla Rojas Vila bendir á að sjávarspendýr kunni að verða vör við hina skyndilegu birtuminnkun, en einnig sé mögulegt að þau haldi einfaldlega áfram venjubundinni hegðun sinni.
„Ein áhugaverðasta spurningin í tengslum við sólmyrkva er hvernig dýr bregðast við skyndilegu myrkrinu. Margar tegundir reiða sig á náttúrulega birtu til að stýra daglegum athöfnum sínum, þar á meðal fæðuöflun, hvíld, áttun og samskiptum. Vegna þessa geta sum dýr brugðist tímabundið við eins og kvöld sé skollið á,“ skrifar Carla í frásögn sinni af atburðinum sem lesa má í heild sinni á vef Gentle Giants.
„Vísindamenn hafa skráð margvísleg viðbrögð dýra við fyrri sólmyrkvum, allt frá breytingum á virkni fugla til breyttrar hegðunar skordýra. Viðbrögðin eru þó oft lítil og geta verið mjög mismunandi eftir tegundum og einstaklingum.
En hvað með hvali? Fyrir okkur sem verjum miklum tíma á sjó vaknaði sérstaklega ein spurning: Hvernig myndu hvalir bregðast við?
Svarið er einfaldlega að við vitum enn mjög lítið. Enn hafa ekki verið gerðar nægilega margar vísindarannsóknir til að hægt sé að skilja að fullu hvernig mismunandi hvalategundir bregðast við sólmyrkva.
Sum sjávarspendýr kunna að verða vör við skyndilega minnkun birtunnar en önnur halda ef til vill áfram sínum venjulegu athöfnum án nokkurra augljósra breytinga á hegðun. Athuganir sem safnað er við sólmyrkva geta hjálpað vísindamönnum að skilja betur hvernig þessi dýr skynja umhverfi sitt og bregðast við því.
Hvort sem einhverjar greinilegar breytingar urðu á hegðun dýranna við þennan sólmyrkva eða ekki minna atburðir sem þessir okkur á hversu margt við eigum enn ólært um lífið í hafinu.“


Myndir: Fabio Marcelino, Clara Perez Martinez, Natalia Amigo Chaparro, Chinh Le Duc og Jongsun Lee.
Textinn er byggður á grein sem Carla Rojas Vila birti á vef Gentle Giants.


