Nöfn þeirra sem létust er Jökull sökk

Þrír skipverjar létust þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk austur af landinu miðvikudaginn 25. nóvember. Þeir sem létust voru:

– Aðalsteinn Steinþórsson frá Húsavík, fæddur 1967.
– Jacek Belina frá Ustka í Póllandi, fæddur 1974.
– Eggert Ellertsson frá Reykjavík, fæddur 1985.

Sautján skipverjar voru um borð í Jökli þegar skipið fórst. Fjórtán þeirra var bjargað á lífi við umfangsmiklar björgunaraðgerðir við afar erfiðar aðstæður.

Ritstjórn Húsavík.com vottar fjölskyldum, vinum og samstarfsfólki hinna látnu sína dýpstu samúð.