Tinna Ósk ráðin félagsmálastjóri Norðurþings

Tinna Ósk Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Norðurþings, en Norðurþing auglýsti starfið í apríl síðastliðinn. Greint var frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins í morgun. Tinna er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands. Tinna hefur starfað við …

Sex framboð í Norðurþingi: „Það kom enginn hlaupandi rétt fyrir lokun“

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Norðurþing rann út á hádegi í gær og liggur nú fyrir hvaða framboð munu bjóða fram í kosningunum í vor. Húsavík.com ræddi við Karl Hreiðarsson, formann yfirkjörstjórnar, sem staðfesti að alls sex listar hafi borist og að allir hafi þeir uppfyllt skilyrði kosningalaga. Listarnir voru …

Taka málin í eigin hendur og safna fyrir sauna klefa í Sundlaug Húsavíkur

Víðir Svansson, Birgitta Bjarney Svavarsdóttir og Harpa Steingrímsdóttir hafa hrundið af stað söfnun með það að markmiði að gefa Norðurþingi sauna klefa til að setja upp við Sundlaug Húsavíkur. Að þeirra sögn er fjárhagsstaða sveitarfélagsins með þeim hætti að ekki sé gert ráð fyrir slíkri fjárfestingu á næstunni. Því …

Margt er baðstofuhjalið

Starfsemi stjórnsýslu og félagsþjónustu Norðurþings á Húsavík þurfti að yfirgefa húsnæðið við Ketilsbraut 7–9 vegna myglu og heilsuspillandi aðstæðna. Það er ekki álitamál heldur staðreynd, staðfest með sýnatökum, gögnum og mati sérfræðinga. Veikindi starfsfólks voru staðfest af læknum og tengd aðstæðum í húsnæðinu og þegar upp var staðið höfðu …

Starfsmannahúsnæði Grænuvalla aftur í notkun í byrjun sumars: „Hefur alveg reynt á“

Framkvæmdir við starfsmannahúsnæði leikskólans Grænuvalla að Iðavöllum 8 ganga samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að húsnæðið verði tekið aftur í notkun í lok maí eða byrjun júní. Þetta staðfestir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri í samtali við Húsavík.com, en frá því í nóvember hefur starfsemi skólans verið skert …

Rætt við formann Framsýnar og forseta sveitarstjórnar í kvöldfréttum RÚV

Rætt var við Aðalstein Árna Baldursson formann Framsýnar og Hjálmar Boga Hafliðason forseta sveitarstjórnar Norðurþings í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld. Tilefnið var staðan á Húsavík eftir að starfsemi kísilvers PCC á Bakka var stöðvuð og áhrif þess á atvinnulíf og byggð á svæðinu. Í fréttinni kom fram að atvinnuleysi …