Hátíðlegir dagar í Húsavíkurkirkju: Tveir skírðir, níu fermd og 38 útskrifuð

Það hefur verið mikil gleði í kirkjunni okkar nú um helgina, en á laugardag fór fram útskrift frá Framhaldsskólanum á Húsavík. Að þessu sinni voru það 38 nemar sem útskrifuðust og er þar á ferðinni einn af stærri hópum sem útskrifast hafa frá skólanum.

Í gær, Hvítasunnudag, komu svo ungmenni til fermingar, en áður en að því kom voru tveir ungir menn skírðir og svo níu manna hópur fermdur. Sr. Sólveig Halla sóknarprestur skrifar um daginn á síðu kirkjunnar:

Á Hvítasunnudag fermdust 9 ungmenni. Tveir piltar voru auk þess skírðir í upphafi messunnar í dag. Nú er fermingum lokið þetta vorið. Við óskum fermingarbörnum og ástvinum innilega til hamingju, Guð blessi þau alla daga.