Afhjúpuðu skilti öflugs styrktaraðila á leik Völsungs og Fylkis í gær

Völsungar tóku á móti Fylki á GPG vellinum í gærkvöldi í hörkuleik þar sem gestirnir fóru að lokum með 0–1 sigur af hólmi.

Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu. Stuðningsmannasveitin Græni herinn lýsti leiknum svo í færslu eftir leik:

„Fylkismenn mættu á GPG völlinn fyrr í dag og til að gera langa sögu stutta tóku þeir 3 stigin með sér. Eina mark leiksins kom eftir vítaspyrnu sem óhætt er að segja að hafi verið umdeild. Eða ekkert umdeild kannski, átti sennilega aldrei að vera víti bara. Boltinn er þó brögðóttur og ekkert við því að gera annað en að nota þetta sem bensín og koma tvíefldir til baka, stutt í næsta leik. Fínasta frammistaða hjá okkar mönnum þótt stigin hafi ekki fylgt með. Lokatölur 0-1. Boltinn maður.“

Skemmtileg stund átti sér stað fyrir leik þegar nýtt skilti var afhjúpað við völlinn frá félagsbúinu Grobbholti:

„Ánægja meðal hluthafa í Grobbholti. Þessi mynd var tekin í gær af Aðalsteini Árna stjórnarformanni Grobbholts og Heimi Guðjónssyni hluthafa í stórbýlinu á Húsavíkurvelli. Heimir sem er einn okkar ástsælasti þjálfari í knattspyrnu var með lið sitt Fylki í heimsókn á Húsavík. Við það tækifæri var þetta skilti vígt en Grobbholt er langstærsti styrktaraðili Völsungs. Reyndar hefur það ekki fengist staðfest. Vissulega ánægjulegt að nota gróðann í Grobbholti til góðra verka enda allar ærnar með 2 eða 3 lömb.Vonandi gerir skatturinn ekki athugasemdir við það,“ segir á Facebook síðu Grobbholts.