Golfklúbbur Húsavíkur: Miðvikudagsmótaröðin verður Íslandsbankamótaröðin

Golfklúbbur Húsavíkur og Íslandsbanki hafa gert með sér samstarfssamning sem hefur það að markmiði að styðja við barna- og unglingastarf félagsins. Þá verður Íslandsbanki líkt og undanfarin ár bakhjarl miðvikudagsmótaraðarinnar, sem fær nafnið Íslandsbankamótaröðin, sem er innanfélagsmót GH og telur alls 7 mót. „Að styðja vel við æskulýðs- og …

Metfjöldi bíla um Vaðlaheiðargöng eftir Völsungsleik á Akureyri

Völsungsstúlkur mættu KA í þriðja og síðasta leik liðanna um sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í blaki á fimmtudaginn síðasta. Mikil stemning hefur verið í kringum liðið í vetur og sést það einna best á tölfræði sem Húsavík.com hefur fengið frá Vaðlaheiðargöngum um umferð um göngin á fimmtudagskvöld að …

Unbroken deildin: Inga Björg valin efnilegust og Taylor og Tamara í draumaliðinu

Inga Björg Brynjúlfsdóttir, leikmaður blakdeildar Völsungs, hefur verið valin efnilegasti leikmaður í Unbroken deildar kvenna þessa leiktíðina. Blaksambands Íslands kynnti í liðinni viku draumalið deildarinnar og þá einstaklinga sem sköruðu framúr. Inga Björg hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Völsungsliðinu í vetur. „Hún hefur staðið sig frábærlega …

Stutt stopp De Wilde hjá Völsungi

Patrick De Wilde er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Völsungi, en tilkynnt var um ráðningu hans í desember síðastliðnum. Félagið staðfesti tíðindin á Facebook síðu Græna hersins síðdegis í gær, en þar kemur fram að aðilar hafi komist að samkomulagi um starfslok. „Knattspyrnudeild Völsungs og Patrick De Wilde …

Íslandsbanki undirritar nýjan styrktarsamning við Völsunga

Líkt og undanfarin ár hafa íþróttafélagið Völsungur og Íslandsbanki gert með sér samstarfssamning sem hefur það að markmiði að styðja Íþróttafélagið Völsung í íþrótta- og uppeldislegu hlutverki sínu á Húsavík. Einnig er lögð áhersla á að kynjahlutföll þeirra sem njóta styrkja úr samningnum séu jöfnuð. Samningurinn sem gildir út …

Íþróttafélagið Þingeyingur undirritar samstarfssamning við Norðurþing

Íþróttafélagið Þingeyingur og sveitarfélagið Norðurþing hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning sem miðar að því að efla íþróttastarf og hreyfingu í sveitarfélaginu. Samningurinn felur meðal annars í sér að Þingeyingur tekur yfir umsjón og ræstingar í íþróttahúsunum í Lundi og á Kópaskeri, með það að markmiði að bæta nýtingu …