Það er mikið að gera hjá ungu húsvísku blakkonunni Ingu Björgu Brynjúlfsdóttur þessa dagana. Hún er nýlega komin heim frá San Marínó, þar sem hún og U20 ára landslið Íslands tryggðu sér gullið á SCA-móti, og Inga heldur svo út til Danmerkur nú á sunnudag með U17 ára landsliðinu til að keppa á NEVZA-móti í Ikast.
Inga Björg var stigahæst í úrslitaleiknum gegn heimakonum í San Marínó, með 25 stig, jafnmörg og Þorbjörg Rún Emilsdóttir. Ísland vann leikinn 3–2 eftir æsispennandi viðureign. Liðið vann fyrstu tvær hrinurnar, 31–29 og 25–20, en San Marínó jafnaði með tveimur 25–20 sigrum. Í oddahrinunni náði Ísland aftur undirtökunum og vann hana 15–7.
Ísland vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Skotlandi, Norður-Írlandi og Írlandi, án þess að tapa hrinu. Í undanúrslitum vann liðið Færeyjar 3–2, einnig eftir oddahrinu, áður en það mætti San Marínó í úrslitaleiknum.
SCA-mótið í San Marínó var hluti af undankeppni Evrópumótsins. Með sigrinum tryggði íslenska liðið sér beint sæti á lokamóti U20 EM, sem fram fer á Ítalíu og Möltu í júlí á næsta ári.
Inga er ein fimm leikmanna KA í U20-hópnum. Hinar eru Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir, Anika Snædís Gautadóttir, Katla Fönn Valsdóttir og Kara Margrét Árnadóttir. Inga gekk til liðs við KA frá Völsungi í vor.


