Inga Björg Brynjúlfsdóttir heldur áfram að stíga stór skref í blakinu en hún var fyrirliði íslenska U18-landsliðsins sem nýverið tók þátt í lokakeppni Evrópumótsins í Lettlandi. Þá hafa Inga og Sigurður Helgi bróðir hennar nýverið skrifað undir við KA og munu leika með liðinu á næsta tímabili.
Undanfarna mánuði hefur Inga Björg verið á ferð og flugi. Í júní æfði hún og lék með A-landsliði Íslands í European League og samhliða því tekið þátt í reglulegum æfingabúðum U18-landsliðsins sem undirbúning fyrir Evrópukeppnina.
Í Lettlandi mætti íslenska liðið sterkustu blakþjóðum Evrópu í þessum aldursflokki. Fyrsti leikurinn var gegn Ítalíu, sem lék síðar til úrslita á mótinu gegn Tyrklandi. Inga Björg gegndi hlutverki fyrirliða íslenska liðsins og stóð sig vel jafnt innan vallar sem utan, að því er fram kemur á vef Völsungs.
Þetta er enn einn áfanginn á glæsilegri vegferð Húsvíkingsins unga. Húsavík.com hefur áður fjallað um Ingu Björgu sem hefur á undanförnum árum vakið athygli.
Sjá Sunnudagsviðtal við Ingu Björg:
Inga Björg Brynjúlfsdóttir: 15 ára á leið á Evrópumót
„Við erum stolt af fulltrúa Völsungs og þátttöku Ingu Bjargar með landsliðinu og gaman að fylgjast með henni ná árangri í blakinu,“ segir á vefsíðu Völsungs.

