Útvarpsþátturinn Hljóðvegur 1 á Rás 2 verður í beinni útsendingu frá Eurovision-safninu á Húsavík síðdegis í dag. Þátturinn hefst strax að loknum fréttum klukkan 16:00 og verður meðal annars rætt um Mærudaga, ferðaþjónustu og sumarið á Húsavík.
Steiney Skúladóttir, tónlistarmaður og dagskrárgerðarkona, var mætt á Húsavík í dag til að undirbúa útsendinguna. Hún segir markmiðið að taka sumarstemninguna með sér um landið.
„Við erum að taka sumarstemninguna um allt land og erum mætt á Húsavík í dag,“ segir Steiney í blíðunni.
Hljóðvegur 1 hefur notið vinsælda meðal hlustenda Rásar 2 í sumar en í þættinum ferðast umsjónarmenn um landið, hitta heimafólk, spila tónlist og fjalla um menningu, mannlíf og viðburði víðs vegar af landinu. Umsjón með þættinum hafa Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir, sem skiptast á að vera á ferðinni og flytja hlustendum sögur og stemningu úr ólíkum byggðarlögum.
Beina útsendingin frá Húsavík hefst klukkan 16:00 og má hlusta á hana á Rás 2 eða í Spilara RÚV.

