Metfjöldi bíla um Vaðlaheiðargöng eftir Völsungsleik á Akureyri

Völsungsstúlkur mættu KA í þriðja og síðasta leik liðanna um sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í blaki á fimmtudaginn síðasta. Mikil stemning hefur verið í kringum liðið í vetur og sést það einna best á tölfræði sem Húsavík.com hefur fengið frá Vaðlaheiðargöngum um umferð um göngin á fimmtudagskvöld að leik loknum, en þá fóru 63 ökutæki gegnum göngin á austurleið.

„Það fóru 63 ökutæki í gegn á milli klukkan tíu og miðnættis, en á venjulegum degi fara um 18–20 ökutæki á þessum tíma á virku kvöldi, svo þetta er veruleg aukning og segir mikið um þann stuðning sem Húsvíkingar sýndu sínu liði,“ segir Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga í samtali við Húsavík.com.

Valgeir, sem sjálfur er ötull blakmaður, fylgdist með leiknum í beinu streymi. „Ég var að fylgjast með leiknum og það heyrðist eiginlega bara í Völsungum í höllinni. Svo vel heyrðist að ég varð að fara og skoða tölfræðina eftir leikinn,“ segir hann.

Þrátt fyrir frábæran stuðning dugði hann ekki til sigurs að þessu sinni en liðið hefur engu að síður átt eftirminnilega leiktíð og vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína.