Tónlistarskólar á Norðurlandi héldu sína uppskeruhátíð Nótuna í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit nú um helgina og endaði hátíðin á veglegum tónleikum. Tónlistaskóli Húsavíkur átti þar þrjá fulltrúa, en það voru þær Bryndís Edda Benediktsdóttir, Sóley Ósk Bjarkadóttir og Svanhildur Sól Sigurbjarnadóttir.
Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar var að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda að því er fram kemur á vefsíðu viðburðarins. Nótan var fyrst haldin fyrir 16 árum.

