Daði Halldórs og Emajor bjóða blúsunnendum ókeypis á tónleika í Eurovision safninu í kvöld

Blúsrokkhljómsveitin Emajor, undir forystu Húsvíkingsins Þorvaldar Daða Halldórssonar, hefur leikið í Eurovision safninu á Húsavík þessa helgina. Fyrri tónleikarnir fóru fram í gærkvöldi við frábærar undirtektir áheyrenda og í kvöld gefst tónlistarunnendum annað tækifæri til að sjá sveitina á sviði þegar þau stíga á stokk klukkan 20:30. Aðgangur er …

Tónasmiðjan fagnar 20 árum í kvöld: „Fallegt og hugljúft í bland við alvöru rokk og ról“

Tónasmiðjan heldur glæsilega afmælistónleika á Fosshótel Húsavík í kvöld, mánudaginn 25. maí, þar sem fagnað verður tuttugu ára starfsafmæli. Húsavík.com ræddi við Elvar Bragason, forsvarsmann Tónasmiðjunnar, rétt fyrir tónleikana í kvöld. „Stemningin er góð, við erum að fara í rennsli eftir nokkrar mínútur og þetta verður stórkostlegt kvöld. Rokk …

Tónleikagestir í troðfullri Húsavíkurkirkju tóku vel undir á útgáfutónleikum Ágústs

Það voru þétt setnir bekkirnir í Húsavíkurkirkju í gærkvöldi þegar Ágúst steig á svið (eða öllu heldur að altarinu) og hélt ásamt hljómsveit sinni útgáfutónleika fyrir nýju plötuna, Hjartað á milljón. Kirkjan var troðfull og sjaldan hefur jafn mikill fögnuður ómað undir kirkjuhvelfingunum og þegar tónleikarnir hófust. Strax í …

Gentle Giants og GPG bjóða bæjarbúum á útgáfutónleika Ágústs í Húsavíkurkirkju

Það verður sannkölluð tónlistarveisla í Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 7. maí þegar Húsvíkingurinn Ágúst Þór Bryjarsson heldur útgáfutónleika á heimavelli og flytur sína fyrstu plötu, Hjartað á milljón, ásamt nokkrum vel völdum lögum. Aðgangur verður ókeypis en það eru fyrirtækin Gentle Giants og GPG sem bjóða bæjarbúum á tónleikana. Mikið hefur …

Húsavíkingar með brekkusönginn og þjóðhátíðarlagið: Væri ekki réttast að hafa þjóðhátíð á Jónasartúni?

Í morgun var tilkynnt um flytjendur þjóðhátíðarlags Vestmanneyinga í ár en það eru Húsvíkingurinn Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör. Stuttu áður hafði verið greint frá því að annar Húsvíkingur, Ágúst Þór Brynjarsson, myndi stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í sumar. Það hefur ekki farið framhjá fólki að Húsavík á þar …

Bryndís Edda, Sóley Ósk og Svanhildur Sól komu fram á uppskeruhátíð tónlistarskólanna

Tónlistarskólar á Norðurlandi héldu sína uppskeruhátíð Nótuna í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit nú um helgina og endaði hátíðin á veglegum tónleikum. Tónlistaskóli Húsavíkur átti þar þrjá fulltrúa, en það voru þær Bryndís Edda Benediktsdóttir, Sóley Ósk Bjarkadóttir og Svanhildur Sól Sigurbjarnadóttir. Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 …