Á laugardaginn 27.júní verða tónleikar í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn. Það er heimamaðurinn Þorgeir Brimir Harðarson sem verður með tónleika sem bera yfirskriftina Upphafið og er tónleikaferðalag sem Þorgeir Brimir fer með um landið. Það eru fáir heimamenn á Raufarhöfn sem muna eftir þessum snjalla tónlistarmanni án gítarsins en Þorgeir Brimir hefur alltaf haft tónlistina með sér frá blautu barnsbeini, ”ég hef svo verið að skemmta sem trúbador í gegnum árin bæði hérna heima og fyrir sunnan” segir Þorgeir Brimir og er spenntur fyrir því að spila í heimabyggð, “ Raufarhöfn er mitt heimili og ég vil leyfa fólkinu á staðnum mínum vita hvað ég er að gera”.
Þorgeir Brimir var með tónleika í Tankanum á Raufarhöfn í júlí í fyrra þar sem hann spilaði og söng velvalin Bubbalög og svo frumsamið efni. Í ár er fókusinn á hans tónlist en hann hefur gefið út tvö lög sem má finna á Spotify; My Hero sem kom út 27. mars síðast liðinn og svo Over This sem kom út 15.maí. Þessi tvö lög eru síðan 2017 og 2018 en í lok þessa árs kemur út platan ,,Who I Am “en Þorgeir Brimir stefnir á að fara með sína tónlist út fyrir Ísland. ,,Þetta er bara byrjunin” segir tónlistarmaðurinn og hvetur fólk að koma í Hnitbjörg á laugardaginn á tónleikana Upphafið. ,, Ég nefndi tónleikaferðalagið Upphafið en um leið spyr ég; upphafið að hveru? Það á eftir að koma í ljós”.

