Á bænum Höfða við Raufarhöfn,hafa þau Steinþór og Nanna Steina verið í skógrækt frá árinu 2020 í samstarfi við Land og skóg. Verkefnið hefur þróast jafnt og þétt frá því að fyrstu skrefin voru tekin, en í sumar er verið að gróðursetja tæplega 12.000 plöntur. Gróðursetning hefur farið fram á hverju ári, að einu undanskildu. Að sögn þeirra hefur þetta farið rólega af stað. „Fyrsta árið gróðursettum við skjólbelti, unnum í slóðagerð og girðingum svo hefur þetta komið smátt og smátt.“ Verkefnið hefur hingað til verið unnið að miklu leyti með góðri hjálp fjölskyldu og vina samhliða öðrum bústörfum. „Þegar kom að því að panta plöntur fyrir sumarið 2026 fór ég eitthvað að efast“, segir Nanna og var hún helst á því að gróðursetja ekkert. Þá kom skógræktarráðgjafinn með þá snilldar hugmynd að þeir sendi mannskap. „Það eina sem við þurfum að gera er að hýsa viðkomandi og gefa þeim að borða og aðstoða við eitt og annað“. Þetta hljómaði eins og góður díll og nú þessa daganna eru Camille og Julien, ungir frakkar, að gróðursetja á svæðinu. Einnig kom annar frakki að nafni Antoine til þeirra fyrstu daganna til að kenna þeim réttu handtökin.
Áætlun svæðisins, sem er austan við flugvöllinn hjá Raufarhöfn, gerir ráð fyrir gróðursetningu rúmlega 66.000 plantna á um 26,7 hekturum. Þrátt fyrir hvernig aðstæður eru á norðurhjaranum, hefur gengið vel að festa plönturnar í sessi og eru þær nú orðnar vel rótaðar, sérstaklega lerkið og birkið. „Plönturnar vaxa ekki hratt hér, en þær eru lifandi og hafa náð fótfestu. Það verður spennandi að fylgjast með þessu þróast á næstu árum. Það er ákaflega að gaman að þetta sé að ganga svona vel sérstaklega þar sem ég hef alltaf heyrt að það sé ekki hægt að rækta tré svona norðarlega“, segir Nanna.
Meginþungi gróðursetningarinnar er fura, en einnig hefur verið prófað að rækta birki, reyni, víði, greni og lerki. Slíkar tilraunir gefa mikilvæga innsýn í hvað hentar best við krefjandi aðstæður svæðisins. Skógræktarsvæðið hefur fengið nafnið Höskuldarlundur og telja þau Steinþór og Nanna vel raunhæft að þar muni rísa sýnilegur skógur á næstu áratugum. Það verður spennandi að fylgjast með þessu þróast áfram.

