Sveitarstjórn vill starfsstöð Stofnunar atvinnuveganna í Norðurþingi

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að óska eftir því við atvinnuvegaráðherra að ný Stofnun atvinnuveganna opni starfsstöð í sveitarfélaginu árið 2027 og ráði starfsfólk til staðbundinna starfa. Sveitarstjóra var falið að koma tillögunni á framfæri við ráðherra.

Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og Matvælastofnunar og er gert ráð fyrir að hún taki til starfa í ársbyrjun 2027. Meðal verkefna hennar verða verkefni sem nú eru á höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, auk málaflokka sem tengjast meðal annars fiskeldi, jarðrækt og matvælaframleiðslu, atvinnugreinum sem eru umfangsmiklar í Þingeyjarsýslum.

Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, segir tillöguna snúast um að tryggja fasta starfsstöð og staðbundin störf í sveitarfélaginu.

„Í lögum um stofnunina segir að hún eigi að hafa starfsfólk á Norðurlandi eystra. Við viljum freista þess að að minnsta kosti hluti þeirra starfa verði í Norðurþingi, bæði vegna þess að störfum ríkisins hefur fækkað hér á undanförnum árum og vegna þess að mörg viðfangsefni stofnunarinnar eru umfangsmikil í Norðurþingi og nágrannasveitarfélögum,“ segir Helena.

Ríkisstörfum fækkað um 24 á tveimur árum

Í nýlegri skýrslu Byggðastofnunar um staðsetningu ríkisstarfa kemur fram að þeim hafi fækkað um 24 í Norðurþingi frá 2023 til 2025, úr 233 í 209. Helena bendir á að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað í öllum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra milli áranna 2024 og 2025, að Norðurþingi og Langanesbyggð undanskildum.

„Það er athyglisvert að ríkisstörfum fjölgaði á þessu tímabili alls staðar á Norðurlandi eystra nema í Norðurþingi og Langanesbyggð, þar sem þeim fækkaði,“ segir Helena.

Þegar litið er til lengri tíma hefur ríkisstarfum í Norðurþingi fjölgað hægar en íbúum. Árið 2015 voru þau 199 en 209 árið 2025, sem er um fimm prósenta fjölgun. Á sama tíma fjölgaði íbúum sveitarfélagsins um 12,5 prósent. Hlutfall ríkisstarfa af íbúafjölda lækkaði því úr 7,2 prósentum í 6,7 prósent.

Norðurþing hafði 10,7 prósent allra ríkisstarfa á Norðurlandi eystra árið 2015 en það hlutfall var komið niður í 8,5 prósent árið 2025.

Til samanburðar voru 249 ríkisstörf í Borgarbyggð árið 2025, 365 á Ísafirði, 336 í Skagafirði, 282 í Fjarðabyggð og 330 í Múlaþingi.

Helena áréttar að ekki sé farið fram á að höfuðstöðvar hinnar nýju stofnunar verði í Norðurþingi, enda geri lögin ekki ráð fyrir eiginlegum höfuðstöðvum hennar.

„Tillagan snýr að því að Norðurþing fái sanngjarnan hlut þeirra starfa sem eiga að vera á Norðurlandi eystra. Það fellur vel að markmiðum byggðaáætlunar um jöfn tækifæri til atvinnu, auk þess sem verkefni stofnunarinnar hafa sterka tengingu við atvinnulífið á svæðinu,“ segir Helena.