Mikil leynd yfir nýrri sýningu Píramus & Þispu: Trailer frumsýndur á morgun

Mikil leynd hvílir yfir vetraruppfærslu Píramusar & Þispu, leikfélags Framhaldsskólans á Húsavík. Félagið vinnur að metnaðarfullri sýningu sem byggð er á þekktri kvikmynd, en hvaða mynd það er hefur enn ekki verið gefið upp.

Um 30 nemendur skólans koma að uppfærslunni, að sögn eins aðalleikara sýningarinnar, sem Húsavík.com ræddi við í dag. „Það er búið að vera erfitt að halda þessu leyndu og margir búnir að vera að spyja,“ sagði ónefndi leikarinn.

Trailer frumsýndur á morgun

Hulunni verður svipt af verkinu á morgun, en þá verður fyrsti trailer fyrir leikverkið frumsýnd hér á Húsavík.com klukkan 11 og þá kemur í ljós hvaða þekkta kvikmynd hefur ratað á svið hjá Píramusi & Þispu í vetur.