Leikfélag Húsavíkur þakkar fyrir sig

Þvílíka ævintýrið sem uppsetningin á Rocky Horror er búið að vera. Frá upphafi verkefnisins allt til enda hefur allt gengið okkur að sólu. Þátttaka góð og þátttakendur öll sem eitt ekkert minna en stórkostleg. Það hefur orðið mikil nýliðun í flestum deildum LH þetta leikárið sem við vonum að haldi áfram um ókomna tíð. Þetta hæfileikaríka og skemmtilega fólk er á öllum aldri og hefur tími þeirra að stórum hluta þessa árs farið í starfið, og ávallt eru þau jákvæð og til í þetta. Stundum þreytt en það gleymist hratt þegar verkefnið er skemmtilegt og félagsskapurinn góður. Fólk hefur fært ýmiskonar fórnir til að geta staðið sína plikt og hagrætt skipulagi fyrir stórar stundir í persónulegu lífi til að geta verið með í verkefninu allt til enda. Hafið hjartanlega þökk fyrir.

Við höfum fundið fyrir gríðalegum áhuga og miklum velvilja í samfélaginu öllu. Fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og almenningur hafa hvatt okkur, stutt og styrkt á margan hátt. Metaðsókn var á sýningarnar okkar og sýndum við 20 sinnum fyrir fullu húsi í gamla góða samkomuhúsinu. Félagið er afskaplega þakkátt fyrir þetta allt og hlakkar til komandi verkefna með þennan meðbyr í seglunum. Ekki er ákveðið hvaða verkefni verður tekið fyrir næst en það verður vonandi eitthvað fyrir flest. Við ætlum svo sannarlega að gera eitthvað gaman og gera það saman.

Við hlutum þann heiður í ár að vera valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnefnd Þjóðleikhússins og felur sá heiður í sér að setja sýninguna upp á stóra sviðinu í því merka húsi. Það þáðum við og gerðum þann 13. júní síðastliðinn sem gekk ólýsanlega vel. Þvílík orka, gleði, samheldni, áræðni og kærleikur sem hefur einkennt þennan yndislega hóp. Og hæfileikarnir eru augljósir og auðheyrðir! Við sýndum tvær sýningar í Þjóðleikhúsinu, fyrri sýninguna fyrir 230 gesti og þá seinni fyrir fullu húsi sem rúmar 505 manns. Það er því hægt að segja að Rocky Horror hafi vaxið allan tímann og hætt á toppnum með lokasýningu þar sem öll og allt var á hæsta styrk.

Það er með ólíkindum hvernig tekið var á móti okkur af starfsfólki Þjóðleikhússins. Þar er allt upp á tíu. Við fengum að koma í hús um miðjan dag þann 9. júní, fengum aðgang að starfsfólki og búnaði eins og við þurftum og vildum og saman bjuggum við til stórkostlegan kastala og lýstum sviðið og skreyttum á mettíma. Mjög einkennandi svar starfsfólks Þjóðleikhússins við öllum spurningum okkar var „já, það er ekkert mál“. Við tökum það viðmót með okkur og komum heim reynslunni ríkari með sjálfstraust, hugmyndir og minningar sem munu nýtast í okkar starfi.

Fyrir hönd stjórnar, félaga og annarra þátttakenda,

Helga Sveinbjörnsdóttir, formaður