Ungmennafélagið Austri stendur um þessar mundir fyrir söfnun til kaupa á nýjum líkamsræktartækjum fyrir líkamsræktarsalinn í íþróttamiðstöðinni á Raufarhöfn. Markmiðið er að efla enn frekar þá góðu aðstöðu sem fyrir er og bæta við tækjakost sem nýtist íbúum og öðrum notendum til framtíðar. Í íþróttamiðstöðinni er auk líkamsræktar og íþróttasalar, innisundlaug, heitur pottur, feikilega góð gufa og öll aðstaða til fyrirmyndar.
Líkamsræktarsalurinn hefur um árabil verið mikilvægur þáttur í heilsueflingu á Raufarhöfn og er mikið nýttur af heimamönnum. Aðgengi er sérstaklega gott og hagstæð þar sem er lyklakerfi og hægt að nota aðstöðuna frá morgni til kvölds. Þá sækja margir brottfluttir Raufarhafnarbúar salinn þegar þeir dvelja í heimabyggð, enda hefur aðstaðan verið vinsæl meðal fólks á öllum aldri. Söfnunin hefur gengið vel til þessa. Verkefnið hlaut meðal annars 1,2 milljóna króna styrk frá tilraunaverkefni brothættra byggða. Auk þess hafa einstaklingar, ungmennafélagið sjálft, félagasamtök og fyrirtæki þegar lagt sitt af mörkum og sýnt verkefninu mikinn velvilja.
Fyrir liggur tilboð í ný líkamsræktartæki ásamt flutningi þeirra til Raufarhafnar og nemur heildarkostnaður verkefnisins um 3,6 milljónum króna. Það vantar því ennþá rétt í kringum sexhundruð þúsund til að hægt verði að ganga frá kaupunum en ” við erum vongóð um jákvæð svör þeirra sem við höfum leitað til “segir Ólafur Gísli Agnarsson og tekur hann fram að þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt fram framlag inn á reikning Ungmennafélagsins Austra: Reikningsnúmer: 0192-15-380407 Kennitala: 570785-0369

