Kæru þjóðhátíðargestir, við komum saman á þessum degi til að fagna landinu okkar, sögunni og fólkinu sem hér býr. Við minnumst þeirra sem ruddu brautina, þeirra sem byggðu samfélögin okkar upp, oft við erfiðar og krefjandi aðstæður og þeirrra gilda sem hafa fylgt þjóðinni gegnum aldirnar; dugnaður, samstaða, frelsi og virðing.
En þjóðhátíðardagur er ekki aðeins dagur fortíðar heldur dagur framtíðar. Við eigum ríka sögu og tungumál sem hefur varðveist í hundruðir ára. Menningu sem hefur mótast með náttúruöflum, harðræði og seiglu. Það skiptir máli að við eigum samfélag sem sýnir það aftur og aftur að þegar við stöndum saman getum við tekist á við hvað sem er.
Við lifum á tímum mikilla breytinga. Tæknin þróast hraðar en nokkru sinni og nýjar hugmyndir verða til á hverjum degi. Allt í veröldinni verður sífellt tengdara en samt fjarlægara. Á slíkum tímum er mikilvægt að halda fast í gildin sem gera okkur að samfélagi; virðingu fyrir hvert öðru, ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum og trú á að hver einstaklingur hafi eitthvað fram að færa.
Fjölbreytileikinn er styrkur samfélagsins; fólk kemur úr öllum áttum með mismunandi reynslu, hæfileika og skoðanir. Það er ekki veikleiki heldur auður. Þjóð og samfélag sem kann að taka vel á móti nýjum hugmyndum án þess að glata rótum sínum verður sterkari þjóð, sterkara samfélag.
Það er merkilegt að stundum virðist auðveldara að trúa því að eitthvað fari úrskeiðis en að það takist vel. Eins og bjartsýni sé veikleiki en ekki styrkur. Eins og það sé öruggara að spá óförum en að treysta á getu fólks til að finna lausnir.
En saga Íslands kennir okkur annað. Þau sem byggðu þetta land voru ekki svartsýnisfólk. Þau horfðu ekki á auðnirnar og sáu aðeins hindranir. Þau sáu möguleika. Þau sem reru til fiskjar, byggðu bæina okkar, lögðu vegina, stofnuðu fyrirtækin og skóla landsins hefðu aldrei komist langt ef þau hefðu látið efasemdirnar ráða ferðinni.
Bjartsýni er ekki að loka augunum fyrir vandamálum. Bjartsýni er að horfa á vandamálin og trúa því samt að við getum leyst þau.
En á okkar tímum er stundum eins og einstaklingurinn gleymi samfélaginu. Eins og eigin skoðun sé orðin mikilvægari en sameiginleg niðurstaða. Eins og það eitt að finnast eitthvað rétt geri það sjálfkrafa rétt fyrir öll önnur.
En þannig virkar ekkert samfélag. Þannig byggjum við hvorki bæi, þjóð né framtíð. Framfarir verða þegar fólk finnur sameiginlegan flöt, þegar það sýnir umburðarlyndi og þegar það gerir sér grein fyrir að enginn lifir lífinu einn, óháð öllu öðru.
Kæru þjóðhátíðargestir, við eigum að gleðjast þegar vel gengur. Stundum virðist auðveldara að benda á það sem miður fer en fagna því sem vel er gert. Það er reglulega margt gott í gangi. Samfélög vaxa ekki af afbrigðisemi eða öfund. Þau vaxa þegar við hvetjum hvert annað áfram, þegar við gleðjumst yfir árangri náungans, vinnufélaga eða unga fólksins sem er að skapa sér framtíð.
Við sjáum þetta á Húsavík á hverjum degi. Hér hefur fólk byggt upp öflugt samfélag, fyrirtæki sem skapa verðmæti, félagasamtök sem efla mannlífið og einstaklinga sem leggja sitt að mörkum af óeigingirni. Það er ástæða til að vera stolt.
Við eigum ekki aðeins að varðveita það góða sem við höfum fengið í arf heldur að bæta það, skapa ný tækifæri, hlúa að börnunum okkar, unga fólkinu og nýjum íbúum. Styðjum þau sem þurfa aðstoð og byggjum samfélag þar sem fleiri blómstra. Þannig heiðrum við fortíðina best, með því að skapa betri framtíð.
Á þessum þjóðhátíðardegi skulum við horfa fram á veginn með bjartsýni, treysta á styrk okkar, gildi og samstöðuna sem hefur fylgt þessari þjóð í gegnum aldirnar.
Megi Ísland áfram vera land tækifæra, frelsis, fjölbreytileika og samkenndar.
Til hamingju með daginn.
Hjálmar Bogi Hafliðason

