Heiðar Hrafn Halldórsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri á sviði símenntunar hjá Þekkingarneti Þingeyinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stofnuninni.
„Heiðar býr yfir víðtækri reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun, rekstri og kynningarmálum. Hann hefur m.a. starfað sem verkefnastjóri hjá Hvalasafninu, forstöðumaður Húsavíkurstofu og framkvæmdastjóri Mærudaga auk þess að hafa skipulagt margar ráðstefnur. Þá hefur hann tekið virkan þátt í samfélaginu og setið í nefndum og ráðum á vegum Norðurþings. Heiðar er með BSc gráður í sálfræði og ferðamálafræði, er lærður málari og hefur einnig kennt sálfræði á framhaldsskólastigi. Hann hefur jafnframt komið að verkefnum á sviði raunfærnimats og unnið með fjölbreyttum hópi fólks og hagsmunaaðila,“ segir í tilkynningu frá Þekkingarnetinu.
Þar segir jafnframt að þekking Heiðars á atvinnulífinu á svæðinu, ásamt drifkrafti, hugmyndaauðgi og sterkri þjónustulund, mun nýtast vel í starfi hjá Þekkingarnetinu.
„Ég vil koma á framfæri þakklæti fyrir það tækifæri að ganga til liðs við frábært teymi Þekkinganetsins. Um er að ræða lykilstofnun í samfélaginu sem gegnir mikilvægu hlutverki með því að efla símenntun og rannsóknir á starfssvæðinu. Þar liggja hagsmunir alls samfélagsins, einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til þess mikilvæga verkefnis,“ segir Heiðar í tilkynningunni. Heiðar mun hefja störf í haust.

