Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir hefur verið ráðin í ráðgjafateymi Þekkingarnets Þingeyinga og hefur hún störf í haust. Þorbjörg er lærður kennari með grunn í uppeldis- og menntunarfræði og meistaragráðu í kennarafræðum. Hún hefur undanfarin ár starfað sem umsjónarkennari á yngsta stigi og býr yfir víðtækri reynslu af kennslu, skipulagningu og samskiptum við nemendur og foreldra.
Í tilkynningu frá Þekkingarnetinu kemur fram að Þorbjörg leggi ríka áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti og hafi sérstakan áhuga á að styðja fólk í námi og starfi.
„Fullorðinsfræðsla hefur lengi heillað mig. Það að geta skapað fólki tækifæri til að bæta við sig þekkingu og færni á mismunandi tímum í lífinu skiptir miklu máli, bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild,“ segir Þorbjörg.
Hún hefur einnig komið að fræðslu og miðlun með fyrirlestrum og fundum fyrir foreldra og nýverið tók hún þátt í STEM-endurmenntunarferð sem hluta af Erasmus+ verkefni.
Hildur Halldórsdóttir, forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga, segist afar ánægð með ráðninguna. „Við erum afar ánægð með að fá Þorbjörgu til liðs við okkur. Hún kemur með sterkan faglegan bakgrunn, mikla reynslu af fræðslu og einstaka hæfni í mannlegum samskiptum. Hún hefur mikla reynslu af teymisvinnu og er jafnvíg á að leiða verkefni og vinna með öðrum. Við erum sannfærð um að hennar þekking, jákvæðni og lausnamiðuð nálgun muni nýtast vel í starfi og styrkja áfram starfsemi okkar.“
Áður en Þorbjörg hóf kennslu starfaði hún um árabil við hvalaskoðun, auk afgreiðslu- og þjónustustarfa, reynslu sem Þekkingarnetið telur nýtast vel í fjölbreyttu starfi stofnunarinnar.

