Hvalaráðstefna Hvalasafnsins á Húsavík fer fram í ellefta skipti í dag. Að þessu sinni verður viðburðurinn haldinn á Stéttinni og hefjast leikar kl. 17.00.
Á dagskránni eru sex erindi sem öll tengjast hvölum en í mjög víðu samhengi. Ráðstefnan er unninn í samvinnu við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Húsavík og ráðstefnuna Whales and Humans: Past Entanglements and Current Relations sem fram fór í Reykjavík dagana 22-23 júní. Nokkrir fyrirlesarar af Whales and Humans munu einnig koma fram á Hvalaráðstefnunni auk fjölda gesta sem koma norður í land sem gestir.
Hvalaráðstefnan er hugsuð sem tækifæri fyrir fræðifólk, leiðsögufólk, nemendur og annað áhugafólk um hvalatengd málefni til að hittast og deila nýjustu rannsóknarniðurstöðum um hvalatengdar rannsóknir, bæði í Skjálfandaflóa og um heim allan. “Viðburðurinn er því mikilvægur vettvangur milli þeirra sem miðla þekkingu um hvali og leikmanna, svo sem gesta í hvalaskoðunarferðum.” segir Heiðar Hrafn Halldórsson sem stýrir ráðstefnunni í dag.

