Myndasafn: Greifarnir snúa heim á 40 ára afmælinu – „Hérna byrjaði allt“

„Þetta eru myndir frá fyrstu árum okkar á Húsavík, sumar teknar þegar við vorum að spila í Húsavíkurbíói og aðrar frá æfingum í barnaskólanum, löngu áður en við urðum Greifarnir og hétum enn Special Treatment,“ segir Kristján Viðar Haraldsson, Viddi Greifi, sem gróf upp nokkrar gamlar ljósmyndir úr safni sveitarinnar og sendi Húsavík.com í tilefni afmælis sveitarinnar.

Myndirnar sýna upphafið að einni vinsælustu hljómsveit Íslands. Þar má sjá unga Húsvíkinga æfa sig í skólastofum og stíga sín fyrstu skref á sviði, mörgum árum áður en lög á borð við Útihátíð, Þyrnirós, Hraðlestina og Sumarnótt urðu þjóðareign. Kjarninn í sveitinni var myndaður á Húsavík þegar þeir Viddi, Bjössi, Jón Ingi og Gunni byrjuðu að spila saman og stofnuðu hljómsveitina Special Treatment árið 1983. Fjórmenningarnir eru enn saman í Greifunum í dag, rúmum fjórum áratugum síðar.

„Þarna erum við bara ungir strákar að reyna að læra á hljóðfærin og finna út hvernig á að vera í hljómsveit. Það er eiginlega ótrúlegt að horfa á þessar myndir í dag, rúmum fjórum áratugum síðar,“ segir Viddi. Hann rifjar einnig upp að sveitin hafi spilað nokkrum sinnum í Húsavíkurbíói á þessum árum. „Það var fullt út úr dyrum. Það væri gaman ef einhverjir Húsvíkingar skyldu enn muna eftir þessum kvöldum.“

Í ár fagna Greifarnir 40 ára afmæli sínu og leggja af stað í tónleikaferðina „Síðasta sveitaballið“, þar sem rifjuð verður upp stemning gömlu sveitaballanna sem gerði sveitina landsþekkta. Fyrstu tónleikarnir á túrnum voru haldnir í Freyvangi í gærkvöldi og í kvöld mæta Greifarnir í Skúlagarð í Öxarfirði. Fyrir Húsvíkinga eru myndirnar þó kannski stærsta fréttin – einstök sýn inn í þann tíma þegar nokkrir ungir strákar á Húsavík voru rétt að byrja ferðalag sem átti eftir að marka íslenska tónlistarsögu.