Daði Halldórs og Emajor bjóða blúsunnendum ókeypis á tónleika í Eurovision safninu í kvöld

Blúsrokkhljómsveitin Emajor, undir forystu Húsvíkingsins Þorvaldar Daða Halldórssonar, hefur leikið í Eurovision safninu á Húsavík þessa helgina. Fyrri tónleikarnir fóru fram í gærkvöldi við frábærar undirtektir áheyrenda og í kvöld gefst tónlistarunnendum annað tækifæri til að sjá sveitina á sviði þegar þau stíga á stokk klukkan 20:30. Aðgangur er ókeypis.

Daði flutti nýverið aftur til Húsavíkur og hefur nú fengið hljómsveit sína norður til sín. Emajor er einstaklega þétt og kraftmikið blúsband sem flytur marga af þekktustu slögurum blús- og rokksögunnar af mikilli innlifun.

Þeir sem hafa áhuga á blús, rokki og lifandi tónlist ættu því ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara. Fram undan er kraftmikið kvöld þar sem sveitin lofar bæði sál og sveiflu í ríkum mæli.