Hljómsveitin Hástafir heldur sína fyrstu tónleika í Pakkhúsinu við Hafnarstræti á Akureyri næstkomandi laugardagskvöld, 8. ágúst. Í sveitinni er Húsvíkingurinn Friðrik Aðalgeir, sem hefur undanfarin ár getið sér gott orð sem öflugur gítarleikari, en sest nú á trommustólinn. Friðrik hefur vakið athygli fyrir kraftmikla spilamennsku í bókabúð Máls og Menningar í Reykjavík, og vakti einnig athygli þegar hann tók kraftmikið gítarsóló í beinni útsendingu á RÚV þar sem hann spilaði ásamt Stefáni Jakobssyni og Gretu Salóme.
Hljómsveitina Hástafir skipa þau Sóley Eva, Ísabella Sól, Emil Andri, Friðrik Aðalgeir og Theodór Marvin. Þrátt fyrir að öll hafi þau mikla reynslu af tónlist er þetta í fyrsta sinn sem hópurinn kemur fram saman sem hljómsveit.
Í samtali við fréttavefinn Kaffið.is á Akureyri segir Ísabella Sól að markmiðið sé að skapa stemningu sem minni á tónleika á Græna hattinum. Nafn sveitarinnar sé orðaleikur sem vísi til þess að „syngja með hástöfum“ og vonast þau til að bæði hljómsveitin og áhorfendur taki vel undir. Á efnisskránni verða popp- og rokksmellir á íslensku og ensku ásamt frumsömdum lögum sveitarinnar.

