Ágúst stýrir brekkusöng á Þjóðhátíð í kvöld

Húsvíkingurinn Ágúst Þór Brynjarsson tekur í kvöld við einu eftirsóttasta hlutverki íslensks tónlistarlífs þegar hann stýrir brekkusöng Þjóðhátíðar í Herjólfsdal í fyrsta sinn. Þúsundir gesta munu syngja með þegar Ágúst leiðir hinn sígilda brekkusöng og tekur þar við keflinu af fyrri brekkusöngvurum.

Ágúst ræddi við Sigga Gunnars á Rás 2 fyrr í dag þar sem hann sagði spennuna vera mikla, en að taugarnar væru enn í góðu lagi. „Ég hélt að ég myndi verða orðinn stressaður svona á sjálfum leikdegi en svo bara þegar maður hittir eyjafólkið og alla gesti, hvað allir eru spenntir fyrir þessu, róar það taugarnar hjá mér,“ sagði hann. Hann gaf einnig í skyn að brekkusöngurinn í ár yrði með hans eigin blæ og lofaði að á dagskránni yrðu nokkur lög sem gestir ættu síður von á að heyra, þó að sígildu brekkusöngslögin, þar á meðal Lífið er yndislegt, verði að sjálfsögðu á sínum stað.

Margir Húsvíkingar munu eflaust fylgjast spenntir með þegar Ágúst Þór Brynjarsson setur sitt mark á brekkusöng Þjóðhátíðar í fyrsta sinn.