Heimildarmyndin „Voru allir hér?“ sem segir sögu Laugaskóla í Reykjadal í tilefni af 100 ára afmæli skólans, verður sýnd á RÚV í kvöld klukkan 19:40. Myndin var frumsýnd á aldarafmæli skólans í október í fyrra og rekur sögu skólans og þau djúpu áhrif sem hann hefur haft á menntun, íþróttalíf og menningarstarf á Norðurlandi. Í myndinni er rætt við fjölda fyrrverandi nemenda og starfsfólks sem rifja upp lífið á Laugum og þann einstaka anda sem einkennt hefur skólann í gegnum tíðina. Leikstjóri er Ottó Gunnarsson, framleiðslufyritækið er Hero Productions í Reykjavík og meðframleiðslufyrirtæki er Castor miðlun á Húsavík.
Í samtali við Húsavík.com segir Ottó að stærsta áskorunin hafi verið að þjappa hundrað ára sögu saman í 75 mínútna heimildarmynd. „Því miður var fullt af skemmtilegu myndefni, ljósmyndum og sögum frá viðmælendum sem rötuðu ekki í myndina. En ég held að það hafi náðst að fleyta rjómann og púsla saman í eina heimildarmynd í fullri lengd. Ég held að þessi mynd nái að sýna og túlka hvað þessi staður stendur fyrir í hjörtum svo margra sem komu þar við,“ segir Ottó.
Sýnd fyrir troðfullum bíóhúsum
Myndin var sýnd nokkrum sinnum í kvikmyndahúsinu Þróttó á Laugum í tengslum við aldarafmæli Laugaskóla, auk tveggja sýninga í Bíó Paradís í Reykjavík og tveggja sýninga í Sambíóunum á Akureyri. Aðsókn var mikil, enda margir gamlir Lauganemar sem bera sterkar tilfinningar til gamla skólans síns. Þá hlaut mikla viðurkenningu þegar hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna 2026 fyrir bestu klippingu. Klippingin var í höndum Daníels Bjarnasonar. Ottó nefnir einnig að sérstök vinna hafi verið lögð í að endurvekja hinn sígilda Laugamannasöng, sem hvergi fannst á upptöku. Karlakórinn Hreimur útsetti lagið upp á nýtt og Borgar frá Brúum sá um upptökuna. „Alveg geggjað, og ég og margir fleiri bíða eftir að þeir taki sig til og skelli því á Spotify,“ segir Ottó.

